Þorsteinn ráðinn veitustjóri

Þorsteinn ráðinn veitustjóri

Þorsteinn Sigurjónsson rafmagnsverkfræðingur og MBA hefur verið ráðinn veitustjóri Húnaþings vestra. 

Þorsteinn hefur langa og fjölbreytta starfsreynslu af sviði veitna. Frá árinu 2017 hefur hann starfað sem sviðsstjóri veitusviðs hjá Fjarðabyggð.  Áður starfaði hann m.a. sjálfstætt sem ráðgjafi á sviði raforku, hjá Orku náttúrunnar, Orkuveitu Reykjavíkur, Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja, bæði sem stjórnandi og sérfræðingur.

Þorsteinn hefur störf 2. janúar 2019.  Við bjóðum hann velkominn til starfa.

Sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?