Íþróttamiðstöð Húnaþing vestra.
Frá og með 13. janúar 2021 og til og með 17.febrúar 2021 tekur ný reglugerð í gildi sem segir til um sóttvarnaraðgerðir vegna covid-19
Helstu breytingar sem hafa áhrif á starfsemi íþróttamiðstöðvar eru þessar:
- Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns.
- Heilsu- og líkamsræktarstöðvar: Starfsemi verður heimil með ströngum skilyrðum. Fjöldi gesta má að hámarki vera helmingur þess sem kveðið er á um í starfsleyfi, eða helmingur þess sem búningsaðstaða gerir ráð fyrir ef gestafjölda er ekki getið í starfsleyfi. Einungis er leyfilegt að halda skipulagða hóptíma þar sem hámarksfjöldi í hverjum hópi eru 20 manns og gestir í hvern tíma skráðir. Búningsklefar skulu vera lokaðir. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sóttvarnalæknir mun setja fram ýtarlegar leiðbeiningar um sóttvarnir á heilsu- og líkamsræktarstöðvum.
- Íþróttaæfingar: Íþróttaæfingar barna og fullorðinna verða heimilar með og án snertingar innan- og utandyra. Ekki mega vera fleiri en 50 manns í rými.
- Íþróttakeppnir: Íþróttakeppnir barna og fullorðinna verða heimilar en án áhorfenda.
Í ljósi þessa er líkamsræktarsalur Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra áfram lokaður fyrir almenning, en opið er fyrir hóptíma samkv. ofanrituðu. Auk þess eru íþróttaæfingar í sal heimilaðar.
Reglur um hóptíma og fullorðnisæfingar á kvöldin í Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra:
- Aðeins eru leyfðir skipulagðir hóptímar undir leiðsögn þjálfara
- Tveggja metra reglan er í gildi og grímuskylda þar sem ekki er hægt að virða nálægðarreglu
- Búnaður má ekki fara á milli notenda í hóptímum
- Þjálfari skal sjá til þess að allur búnaður sé sótthreinsaður fyrir og eftir hverja æfingu
- Iðkendur eru hvattir til að koma fullbúnir á æfingu
- Ekki er heimilt að nota búningsaðstöðu og salerni sem eru ætluð sundgestum nema viðkomandi fari í sund eftir æfingu
- Iðkendum á íþróttaæfingum er bent á að nota salernisaðstöðu í nýbyggingu
- Við komu í íþróttamiðstöðina eru gestir vinsamlegast beðnir að kynna sér ýtarlegri sóttvarnarreglur sem gilda fyrir íþróttamiðstöðina og liggja frammi í afgreiðslu