Tilkynning varðandi sorphirðu í Húnaþingi vestra

Að gefnu tilefni vill Húnaþing vestra biðla til íbúa að hreinsa snjó og auðvelda aðgengi að sorptunnum svo starfsmenn sorphirðuverktaka geti tæmt tunnurnar.

Einnig vill Húnaþing vestra upplýsa að tafir verða á sorphirðu í þéttbýli vegna erfiðs aðgengis að ruslatunnum en gert er ráð fyrir að starfsmenn sorphirðuverktaka verði fram á miðvikudag að tæma ruslatunnur á Hvammstanga.

Með von um skilning og góðar undirtektir.

Var efnið á síðunni hjálplegt?