Tónlistarskóli Húnaþings vestra auglýsir laus störf kennara

Tónlistarskóli Húnaþings vestra auglýsir laus störf kennara

Tónlistarskóli Húnaþings vestra auglýsir laus störf kennara

Tónlistarskóli Húnaþings vestra auglýsir eftir tónlistarkennurum í 50% og 100% störf. Um er að ræða 50% starf í söngkennslu og 100% starf í píanókennslu. Einnig kemur til greina að kenna fleiri greinar, sinna meðleik og stjórna barnakór. Störfin eru laus frá og með næsta skólaári.

Tónlistarskóli Húnaþings vestra er vel útbúinn skóli, staðsettur í grunnskólanum á Hvammstanga í nýju húsnæði. Nemendur tónlistarskólans eru um 80. Skólinn leggur áherslu á samspil af ýmsu tagi, fjölbreytni í tónlist og framþróun í kennsluháttum. Tónlistarskóli og grunnskóli eiga í nánu samstarfi.

Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum sem sýna frumkvæði og sveigjanleika í starfi.

Hæfniskröfur

Viðkomandi þarf að geta kennt á píanó og/eða söng.

Æskilegt er að viðkomandi geti sinnt meðleik.

Æskilegt er að viðkomandi geti stjórnað kór.

Kostur er ef viðkomandi getur kennt á fleiri hljóðfæri og tónfræðigreinar.

Kostur er ef viðkomandi getur kennt tónmennt.

Gott vald á íslensku í ræðu og riti er skilyrði.

Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

Frumkvæði í starfi.

Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.

 

Menntunarkröfur

Háskólapróf í tónlist skilyrði og/eða tónlistarnám sem nýtist í starfi.

Reynsla af kennslustörfum og meðleik er æskileg.

 

Ferilskrá og kynningarbréf fylgi með umsókn.

 

Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2024. Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags (FT eða FÍH).

Nánari upplýsingar um starfið veitir Pálína Fanney Skúladóttir, skólastjóri, netfang palinaf@skoli.hunathing.is eða í síma: 867-7159.

Umsóknum skal skila á alfred.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?