Umsjón hátíðarhalda á 17. júní.

Umsjón hátíðarhalda á 17. júní.

Húnaþing vestra auglýsir eftir aðila, félagasamtökum eða einstaklingum sem er reiðubúinn að taka að sér umsjón með undirbúningi og framkvæmd hátíðarhalda á Hvammstanga á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2020

Áhugasamir skili umsóknum þess efnis til Tönju Ennigarð íþrótta- og tómstundafulltrúa tanja@hunathing.is eða á skrifstofu Húnaþings vestra fyrir 30. apríl nk.

Í umsókn komi fram hugmyndir umsækjanda um dagskrá og annað er lítur að framkvæmd hátíðarhaldanna.

Íþrótta-og tómstundafulltrúi.

Var efnið á síðunni hjálplegt?