Við Grunnskóla Húnaþings vestra eru lausar eftirtaldar stöður
-
80-100% staða stuðningsfulltrúa á unglingastigi. Um er að ræða fullt starf allt árið. Utan starfstíma skólans er unnið við aðalhreingerningu og frístundastarf. Gert er ráð fyrir að unnið verði í matar og kaffitímum með nemendum og vinnutíma lýkur fyrr á daginn sem því nemur.
-
50% staða stuðningsfulltrúa á unglingastigi. Um er að ræða starf allt árið. Utan starfstíma skólans er unnið við aðalhreingerningu og frístundastarf.
-
60-80% staða skólaliða. Um er að ræða fullt starf allt árið í frímínútnagæslu og eftirliti með nemendum frá kl. 9:00 – 14:00. Utan starfstíma skólans er unnið við aðalhreingerningu og frístundastarf. Gert er ráð fyrir að unnið verði í matar og kaffitímum með nemendum og vinnutíma lýkur fyrr á daginn sem því nemur.
-
Tvær 35% stöður við ræstingar seinnihluta dags. Starfstími er allt árið, utan starfstíma skóla er unnið við ræstingar, aðalhreingerningu og frístundastarf.
-
50% staða í matsal skólans. Unnið með matráði við framreiðslu, undirbúning og frágang. Starfstími er allt árið.
Við leitum að einstaklingum með
Skipulagshæfileika, lipurð í mannlegum samskiptum, hæfni til að sýna frumkvæði í starfi og taka þátt í samstarfi.
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin.
Frekari upplýsingar veitir Sigurður Þór Ágústsson skólastjóri 4552911/8625466
Umsóknafrestur er til 6. júlí næstkomandi. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Ráðhúsinu, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða á netfangið grunnskoli@hunathing.is.
Skólastjóri