Viðgerð á stofnæð hitaveitu

Viðgerð á stofnæð hitaveitu

Laugardaginn 14. september n.k. frá klukkan 08.00 og þar til viðgerð verður lokið, munu íbúar frá Brekkugötu og norður eftir bænum verða heitavatnslausir og/eða verða fyrir truflunum á heitavatnsrennsli vegna viðgerðar á stofnæð.

Eru íbúar beðnir um að huga að inntökum og sigtum eftir að vatn kemst á að lokinni viðgerð, þar sem óhreinindi geta farið af stað í lögnunum.

 

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

 

Veitusvið.

Var efnið á síðunni hjálplegt?