Afgreiðslur:
- 2108007 Ósk um stuðning vegna námsvistar í FÍH, afgreiðslu frestað á 1101. fundi byggðarráðs. Svar hefur borist frá tónlistarskóla FÍH, óskað var eftir frekari upplýsingum sem hafa borist. Byggðarráð getur ekki orðið við erindinu þar sem það fellur ekki undir reglur um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til eflingar tónlistarnáms og jöfnunar á aðstöðumun nemenda frá árinu 2011. Magnús Magnússon vék af fundi undir þessum lið.
- Verðtilboð í frágang og steypu gangstétta. Björn Bjarnason rekstrarstjóri sat fundinn undir þessum lið. Kallað var eftir verðtilboðum í frágang og steypu gangstétta og steypu kantsteina við Lindarveg, Bakkatún og Grundartún.
Eftirfarandi tilboð bárust í frágang og steypu gangstétta:
Aðaltak slf. kr. 9.116.480
Gunnlaugur A. Sigurðsson kr. 10.575.000
Eftirfarandi tilboð barst í steypu kantsteina:
Kantsteypa Norðurlands ehf. kr. 3.968.000
Kostnaðaráætlun kr. 13.200.000.
Byggðarráð samþykkir að ganga til samninga við Aðaltak ehf. um frágang og steypu gangstétta og Kantsteypu Norðurlands ehf. um kantsteina.
Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir 7,8 milljónum í frágang gangstétta. Sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslu falið að leggja fram viðauka vegna framkvæmdanna.
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 14:33.