Björn Bjarnason rekstrarstjóri kom til fundar kl. 14:10.
|
1.
|
Rekstrarstjóri kemur til fundar - 2403051
|
|
Björn Bjarnason rekstrarstjóri kom til fundar við byggðarráð og fór yfir stöðu helstu verkefna. Byggðarráð þakkar Birni greinargóða yfirferð.
|
Björn vék af fundi kl. 15:17.
|
|
|
|
2.
|
Boð á fulltrúaráðsfund Stapa lífeyrissjóðs þann 11. apríl 2024 - 2403045
|
|
Lagt fram boð á fulltrúaráðsfund Stapa lífeyrissjóðs þann 11. apríl 2024. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður fulltrúi Húnaþings vestra á fundinum.
|
|
|
|
3.
|
Beiðni um afslátt vegna samfélagsviðburða í Félagsheimilinu Hvammstanga - 2403043
|
|
Lögð fram beiðni Félags eldri borgara um afslátt af leigu á Félagsheimilinu Hvammstanga vegna hátíðarhalda á sumardaginn fyrsta. Byggðarráð samþykkir veitingu afsláttar vegna verkefna í samfélagsþágu.
|
|
|
|
4.
|
Umsögn vegna breytinga á afgreiðslu Íslandspósts - 2403042
|
|
Lagt fram bréf frá Byggðastofnun þar sem óskað er umsagnar um þær breytingar á póstþjónustu í sveitarfélaginu sem Íslandspóstur hefur boðað. Lögð fram eftirfarandi umsögn:
Byggðarráð Húnaþings vestra harmar einhliða ákvörðun Íslandspósts um skerðingu starfsemi sinnar í Húnaþingi vestra. Um er að ræða breytingu sem felur í sér niðurlagningu 2,5 stöðugilda á pósthúsinu á Hvammstanga sem í ekki stærra samfélagi er skarð í atvinnulíf svæðisins. Jafnframt felst í breytingunni rýring á samkeppnishæfni þeirra fyrirtækja sem selja vörur í vefverslun á svæðinu þar sem breytingar á aðgengi að þjónustu geta haft áhrif á afgreiðsluhraða. Rök Íslandspósts um að með breytingunni gefist tækifæri á aukinni þjónustu með því að fá póstbíl til sín eru vissulega rétt en bent er á að sú þjónusta ber gjald sem rýrir enn frekar samkeppnishæfni þessara fyrirtækja sem þegar búa við aðstöðumun vegna staðsetningar.
Gengið gegn stefnu stjórnvalda
Í byggðaáætlun sem samþykkt var á Alþingi 2022 eru sett fram tvö meginmarkmið stjórnvalda í byggðamálum. Annars vegar að innviðir mæti þörfum samfélagsins og hins vegar að byggðir og sveitarfélög um land allt verði sjálfbær. Lokun pósthússins á Hvammstanga gengur gegn báðum þessum markmiðum.
Í drögum að skilgreiningu á opinberri grunnþjónustu og jöfnun aðgengis sem birt voru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda í lok árs 2023 eru settar fram tillögur að viðmiðum um nærþjónustu þá sem aðengileg ætti að vera í ákveðnum stærðum samfélaga. Þar er bæjum skipt upp í fjóra flokka, þorp með 50-400 íbúa, minni bæi með 400-2000 íbúa, stærri bæi með yfir 2000 íbúa og að síðustu höfuðborg/svæðisborg. Í Húnaþingi vestra eru í dag um 1250 íbúar þar af um helmingur búsettur á Hvammstanga. Sveitarfélagið fellur því í annan flokkinn, minni bæi með 400-2000 íbúa. Skv. skýringarmynd sem sýnir tillögu að stigum þjónustu sem þar er að finna skal vera pósthús í bæjum af þeirri stærðargráðu.
Þó svo að drög að skilgreiningu á opinberri grunnþjónustu hafi ekki verið lögð fram í lokaútgáfu er ekki að finna mótbárur við skilgreiningu á þjónustustigum í þeim umsögnum sem lagðar voru fram og því hæpið að þar yrði gerð breyting á í lokameðferð skjalsins. Einnig má benda á að sú skipting sem þar er sett fram var unnin í samráði við hagaðila og landshlutasamtök. Vert er að taka fram að Íslandspóstur gerði ekki athugasemd við framangreind drög í nýafstöðnu umsagnarferli.
Byggðarráð harmar því að opinbert hlutafélag gangi gegn stefnu stjórnvalda með eins skýrum hætti og gert er með þeim breytingum sem kynntar hafa verið.
Umhverfissjónarmið
Það skýtur jafnframt skökku við að breytingarnar fela í sér stóraukið kolefnisfótspor með daglegum ferðum póstbíls milli Hvammstanga og Blönduóss sem er í hróplegu ósamræmi við yfirlýsta stefnu stjórnvalda um minnkun kolefnisspors og alþjóðlegar skuldbindingar þar um. Eru þær ferðir til viðbótar við reglubundar ferðir póstbíla landshluta í milli.
Atriði sem lögð eru til grundvallar við mat á beiðni
Í bréfi Byggðastofnunar er vísað til 5. gr. reglna um staðsetningu, fyrirkomulag og öryggismál á afgreiðslustöðum fyrir póstþjónustu. Þar koma fram þau viðmið sem lögð eru til grundvallar við mat stofnunarinnar á beiðni Íslandspóst um lokun afgreiðslustaða: 1. Fjöldi íbúa á því svæði sem afgreiðslustaðnum er ætlað að þjóna. Eins og fram hefur komið eru íbúar Húnaþings vestra um 1250 þar af u.þ.b. helmingur á Hvammstanga. 2. Stærð þess svæðis sem afgreiðslustaðurinn þjónar. Húnaþing vestra er landmikið sveiarfélag. Það nær í suðri frá miðri Holtavörðuheiði og Arnarvatni norður Strandir að Stikuhálsi og að Gljúfurá í austri. Þeir íbúar sem lengst þurfa að fara úr vestri eru í 72 km fjarlægð frá Hvammstanga og 132 km fjarlægð frá Blönduósi. Landpóstur mun halda áfram að þjónusta dreifbýlið, sem er vel, en eins og verið hefur aðeins tvisvar í viku. Þurfi íbúar dreifbýlis að fá sendingar á vörum utan þeirra daga þurfa þeir þá að fara inn á Hvammstanga til að ná í sínar sendingar. Sú staða getur komið upp að sendingar sem þola litla bið, svo sem varahlutir í tæki eða lyf, þurfi þá að sækja á Blönduós sem er í 60 km fjarlægð frá Hvammstanga og þá um 132 km fjarlægð frá þeim sem vestast búa í sveitarfélaginu – aðra leiðina. Fyrir þá sem vestast búa er styttra að fara í Búðardal en skv. bréfi Íslandspósts stendur líka til að loka póstafgreiðslunni þar. 3. Möguleiki íbúa á að sækja þjónustuna annað. Eins og fram hefur komið er aðeins um pósthús á Blönduósi að ræða. 4. Samgöngur á svæðinu. Þjóðvegur 1 liggur í gegnum sveitarfélagið og á milli Hvammstanga og Blönduóss. Bent er á að þó vegasamgöngur séu góðar þá spillist færð reglulega þar á milli á vetrum. Sú staða getur því komið upp að póstbíll komist með sendingar úr Reykjavík á Blönduós að kvöldi en póstbíllinn komist ekki með sendingar morguninn eftir á Hvammstanga. Í þeim tilfellum er um þjónustuskerðingu að ræða þar sem ekki er þá hægt að nálgast sendingu á pósthúsi eins og verið hefur. 5. Fjöldi afgreiðslna á afgreiðslustaðnum á ári. Í erindi Íslandspósts eru ekki upplýsingar um sendingar á pósthúsið á Hvammstanga. Farið var yfir þær upplýsingar á fundi forsvarsmanna Póstsins og byggðarráðs Húnaþings vestra þegar breytingarnar voru kynntar. Óumdeilt er að bréfasendingum er að fækka en á móti kemur að pakkasendingum er að fjölga. Að sama skapi er samkeppni í pakkasendingunum að aukast. Íslandspóstur virðist ætla að draga sig til baka í þeirri samkeppni, frekar en að sækja fram, miðað við þau áform að loka pósthúsum á 10 stöðum á landinu í þessari atrennu. 6. Annað sem getur haft áhrif á möguleika íbúa að að sækja póstþjónustu sem fellur undir alþjónustu.
Af framangreindu má sjá að byggðarráð Húnaþings vestra leggst alfarið gegn því að sú breyting sem Íslandspóstur hefur óskað eftir að gerð verði á rekstri póstþjónustu í Húnaþingi vestra nái fram að ganga. Ráðið sýnir því skilning að bregðast þurfi við breyttu rekstrarumhverfi. Þeim áskorunum telur ráðið hins vegar að mæta mætti með skerðingu á opnunartíma pósthússins og breytingum á starfsmannahaldi samhliða því í stað þess að loka alfarið. Bent er á að skv. upplýsingum frá fulltrúum Póstsins verður ráðinn starfsmaður vegna aukins umfangs verkefna á pósthúsið á Blönduósi. Aðeins mun því fækka um sem nemur 1,5 stöðugildi. Jafnframt bætist við akstur milli Blönduóss og Hvammstanga. Einnig hefði mátt gera breytingar á húsnæði Póstsins á Hvammstanga í takt við minnkandi umsvif.
Sveitarstjóra er falið að koma framangreindu á framfæri við Byggðastofnun og jafnframt óska eftir því að forsvarsmenn Póstsins kynni fyrirhugaðar breytingar á íbúafundi.
|
|
|
|
5.
|
Könnun á áformum um uppbyggingu ljósleiðara aðgangsneta - 2403052
|
|
Lagt fram til kynningar. Á vegum sveitarfélagsins er ekki fyrirhuguð uppbygging ljósleiðaraneta. Sveitarstjóra er falið að tryggja að fjarskiptafyrirtæki sem reka ljósleiðaranet í sveitarfélaginu tilkynni um áform sín.
|
|
|
|
6.
|
Styrktarsjóður EBÍ 2024 - 2403056
|
|
Lagt fram til kynningar. Sveitarfélagið fékk styrk á árinu 2023. Í bréfinu kemur fram að styrkir séu ekki veittir tvö ár í röð. Því verður ekki sótt um styrk á þessu ári.
|
|
|
|
7.
|
Viljayfirlýsing um uppbyggingu á leiguíbúðum í Húnaþingi vestra - 2403057
|
|
Lögð fram drög að viljayfirlýsingu milli Húnaþings vestra og Leigufélagsins Bríetar um uppbyggingu leiguíbúða, yfirtöku eigna og styrkingu leigumarkaðar í sveitarfélaginu á vegum Bríetar. Í samkomulaginu, sem gildir til loka árs 2025, felst að Bríet muni kaupa tvær eignir í byggingu á Hvammstanga auk þess að auglýsa eftir byggingaraðilum til samstarfs vegna kaupa Bríetar á tveimur íbúðum til viðbótar á árinu 2025. Húnaþing vestra muni leggja 6 eignir í eigu sveitarfélagsins inn í Bríeti 2025 í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni og mun Bríet annast útleigu á þeim eignum. Jafnframt muni Húnaþing vestra tryggja aðgengi að lóðum vegna þeirrar íbúðauppbyggingar sem fyrirhuguð er. Byggðarráð fagnar viljayfirlýsingunni og felur sveitarstjóra undirritun hennar fyrir hönd sveitarfélagsins.
|
|
|
|
8.
|
Fundargerð 945. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. febrúar 2024 - 2403041
|
|
Lögð fram til kynningar.
|
|
|
|
9.
|
Fundargerð 946. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 15. mars 2024 - 2403054
|
|
Lögð fram til kynningar.
|
|
|
|