Afgreiðslur:
1. Lögð fram fundargerð 286. fundar skipulags- og umhverfisráðs. Fundargerð í 7 liðum.
1. dagskrárliður borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum
2. dagskrárliður borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum
3. dagskrárliður borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum
4. dagskrárliður borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum
5. dagskrárliður borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum
6. dagskrárliður erindi nr. 1611037. Deiliskipulag fyrir Kolugljúfur. Skipulagstillagan var auglýst frá 6. júní 2017 með athugasemdafresti til 18. júlí. Auglýsingar birtust í Lögbirtingablaði og Sjónaukanum. Skipulagsögnin voru aðgengileg í þjónustuanddyri Ráðhúss Húnaþings vestra og á heimasíðu sveitarfélagsins.
Umsagnir / athugasemdir bárust frá einum aðila. Útdráttur athugasemdar og svör er að finna í fundargerð Skipulags- og umhverfisráðs frá 3. ágúst síðastliðnum. Gerð var lítilsháttar breyting á skipulagsgögnum til að uppfylla hönnunarreglur Vegagerðarinnar um fjarlægð bílastæða frá vegkanti.
Byggðarráð samþykkir með 3 atkvæðum deiliskipulagstillöguna þannig breytta og felur skipulagsfulltrúa að annast gildistöku hennar eins og 41. gr. skipulagslaga nr 123/2010 mælir fyrir um.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
2. 1701013, 1707014, 1707016, 1707024 Lagðar fram styrkumsóknir í Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra.
Fjórar umsóknir bárust. Vegna vanhæfis meirihluta fulltrúa í byggðarráði er úthlutun frestað og vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar.
3. Úthlutun styrkja úr Húnasjóði. 10 umsóknir bárust um styrk úr Húnasjóði, þarf af voru 9 sem uppfylla skilyrði til úthlutunar.
Byggðarráð samþykkir að veita eftirtöldum umsækjendum styrk úr Húnasjóði árið 2017:
Bergþóra F. Einarsdóttir, nám til M.ed prófs í leikskólafræði.
Ellen Mörk Björnsdóttir, nám til M.ed prófs í náms- og kennslufræði tungumála.
Freyja Ólafsdóttir, félagsliðanám
Guðrún Helga Marteinsdóttir, nám í hjúkrunarfræði
Jónína Lilja Pálmadóttir, nám til Bs prófs í reiðmennsku og reiðkennslu.
Liljana Milenkoska, nám í hjúkrunarfræði.
Ólöf Rún Skúladóttir, nám til Bsc. prófs í landafræði
Patrekur Örn Oddsson, nám til Ba prófs í sagnfræði
Sigrún Elísabeth Arnardóttir, nám til Ba prófs í sálfræði.
Styrkfjárhæð á hvern styrkþega er kr. 100.000
Samþykkt að taka á dagskrá:
4. Erindi skólastjóra Grunnskóla Húnaþings vestra, þar sem lagt er til að skólinn leggi til námsgögn fyrir nemendur skólans þeim að kostnaðarlausu. Um er að ræða stílabækur, ritföng, reiknivélar ofl. Í haust verði því engir innkaupalistar, en foreldrar þurfa samt sem áður að sjá börnum sínum fyrir skólatösku, sund- og íþróttafatnaði ásamt ritföngum til afnota heima fyrir. Byggðarráð samþykkir erindið.
5. Byggðarráð þakkar þeim sem stóðu að hátíðinni „ Eldur í Húnþingi“ fyrir gott starf og vel heppnaða hátíð.
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl: 15:24