Kristinn Arnar Benjamínsson skólastjóri leikskólans Ásgarðs og Rannvá Björk Þoreleifsdóttir, fulltrúi foreldra mættu til fundar kl. 15:00
1. Starfsáætlun leikskóla 2025 - 2410051
Kristinn Arnar Benjamínsson fór yfir helstu atriði í starfinu á yfirstandandi skólaári. Nú eru 18,8 stöðugildi við skólann. Gert er ráð fyrir að stöðugildin verði mest 21 eftir áramót og lækki svo aftur um haustið. Áætlaður barnafjöldi verður mest 66, núverandi barnafjöldi er 59. Í vor verða þrír menntaðir kennarar við skólann.
Kristinn Arnar Benjamínsson skólastjóri leikskólans Ásgarðs og Rannvá Björk Þoreleifsdóttir, fulltrúi foreldra véku af fundi kl. 15:21
2. Áskorun til sveitarstjórna á Norðurlandi vestra - 2411004
Lögð fram til kynningar.
3. Opnunartími leikskóla og grunnskóla í kjölfar kjarasamninga - 2411049
Lagt fram bréf skólastjóra leikskóla þar sem farið er yfir áskoranir í starfinu sem fylgja 36 stunda vinnuviku starfsmanna leikskóla. Dagvinnutími annarra en félagsmanna KÍ er nú 7,2 klukkustundir en dvalartími barna allt að 8,5 klukkustundir. Sambærilegar áskoranir eru í frístundastarfi í grunnskóla.
Fræðsluráð leggur til við Byggðarráð að skipa starfshóp til að fara yfir þessar áskoranir og mögulegar lausnir í samvinnu við starfsmenn, foreldra og atvinnurekendur í Húnaþingi vestra.
4. Þjónustukönnun íþróttamiðstöðvar 2024 - 2411048
Lögð fram til kynningar. Fræðsluráð tekur undir vilja í þjónustukönnun til að skoða breytilegan opnunartíma að morgni.
5. Íslenska æskulýðsrannsóknin 2024 - 2411051
Lögð fram til kynningar.
Halldór Sigfússon vék af fundi kl. 16:13
6. Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2024 - 2401004
Sviðsstjóri fór yfir helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi. 72 almenn mál voru á málaskrá fjölskyldusviðs og 64 einstaklingsmál.
Helstu verkefni voru stefna og aðgerðaráætlun um vellíðan án tóbaks, áfengis og annarra vímuefna, reglur um stuðnings- og stoðþjónustu, gott að eldast, farsæld barna, félagsþjónusta, undirbúningur samfélagsmiðstöðvar, barnavernd, fræðslustjóri að láni, íþróttahérað Norðurlands vestra, tengiráðgjafi o.fl. Einnig voru helstu tölur um málaflokka fjölskyldusviðs kynntar.
7. Heimsókn í dreifnám - 2411050
Fræðsluráð heimsótti Dreifnámi FNV á Hvammstanga og fékk kynningu á starfseminni frá Valdísi Auði Arnardóttur.
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:45.