10. fundur

10. fundur Öldungaráðs haldinn þriðjudaginn 29. október 2024 kl. 10:00 í Ráðhúsi.

Fundarmenn

Guðmundur Haukur Sigurðsson, formaður
Jóna Halldóra Tryggvadóttir, aðalmaður
Gyða Sigríður Tryggvadóttir, aðalmaður
Eggert Karlsson, aðalmaður
Ólafur Bergmann Óskarsson, aðalmaður
Kristbjörg Gunnarsdóttir, aðalmaður
Sesselja Kristín Eggertsdóttir, aðalmaður

Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs
 
Henrike Wappler mætti á fund kl. 10:00
1. Gott að eldast - 2310068
Henrike Wappler og Kristín Eggertsdóttir fóru yfir stöðu verkefnisins Gott að eldast. Búið er að skrifa undir samning og þjónustan hefst formlega 1. janúar 2025. Öldungaráð fagnar verkefninu og framvindu þess.
 
Kristín sagði einnig frá ráðstefnu LBÍ um störf öldungaráða á landsvísu. Mög mismunandi er hversu virk ráðin eru og hvernig greitt er fyrir störf þeirra. Fundir eru frá tveimur til átta á ári. Hún sagði einnig frá því að meiri aldursdrefing er í sumum öldungaráðum.
 
Öldungaráð ræddi samsetningu ráðsins, kosti og galla þess.
 
Henrike vék af fundi kl. 11:03
 
 
2. Samfélagsmiðstöð - 2410026
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir undirbúning samfélagsmiðstöðvar. Öldungaráð leggur áherslu á að félag eldri borgara fái aðstöðu í samfélagsmiðstöðinni sem fyrst.
 
3. Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2025 - 2409083
Lögð fram til kynningar.
 
4. Lífsgæðakjarni - 2410027
Formaður kynnti nefnd um lífsgæðakjarna sem hefur það hlutverk að skoða möguleika á bygginga- og þjónustusvæði fyrir neðan Nestún.
 
Fundargerð upplesin og samþykkt Fundi slitið kl. 12:15.
Var efnið á síðunni hjálplegt?