Byggðarráð

1202. fundur 15. janúar 2024 kl. 14:00 - 15:08 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Forsvarsmenn Hótels Laugarbakka koma til fundar við byggðarráð

Málsnúmer 2401030Vakta málsnúmer

Örn Arnarson kom til fundar við byggðarráð og fór yfir starfsemi Hótels Laugarbakka.

2.Bréf frá innviðaráðherra vegna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 2401018Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar. Í bréfinu fer innviðaráðherra yfir niðurstöðu dómsmáls Reykjavíkurborgar á hendur Jöfnunarsjóði vegna úthlutuna úr sjóðnum. Héraðsdómur dæmdi borginni í vil. Með dómnum var ríkinu gert að greiða Reykjavíkurborg um 3,4 milljarða króna auk vaxta og dráttarvaxta. Þeim dómi hefur verið áfrýjað. Á meðan málið er í ferli verður beðið með framlagningu frumvarps um heildarendurskoðun laga um sjóðinn.

Byggðarráð lýsir yfir ánægju með að dómnum hafi verið áfrýjað enda leiðir niðurstaða dómsins, standi hún óbreytt, til skerðingar framlaga til allra sveitarfélaga í landinu til að jafna stöðu sjóðsins. Við það verður ekki unað. Það skýtur skökku við að stærsta sveitarfélag landsins, sem er í allt annarri aðstöðu til að afla tekna en þau minni, geri slíka kröfu til framlaga í sjóðinn sem hefur það hlutverk að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga. Auk þess gengur krafa Reykjavíkurborgar gegn samkomulagi sem gert var árið 1996 við flutning grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga.

3.Ársreikningur Félagsheimilisins Ásbyrgis 2023

Málsnúmer 2401019Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar.

4.Styrkur til nýsköpunar- og skólaþróunarverkefnis - MRN23110753

Málsnúmer 2401015Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá mennta- og barnamálaráðuneyti frá 5. janúar 2024 þar sem samþykktur er styrkur til verkefnisins Samþætt sumarfrístund fyrir miðstig. Farsældarteymi Húnaþings vestra vinnur að hugmyndum og samvinnu við íþróttafélög að útfærslu á samþættri sumardasgkrá fyrir börn. Byggðarráð fagnar styrkveitingunni og felur sveitarstjóra að undirrita samning þar um.

5.Boðun XXXIX. landsþings sambandsins

Málsnúmer 2401024Vakta málsnúmer

Lagt fram boð á XXXIX. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram fer fimmtudaginn 14. mars næstkomandi. Fulltrúar sveitarfélagsins á þinginu eru Þorleifur Karl Eggertsson oddviti sveitarstjórnar og Magnús Magnússon formaður byggðarrás samkvæmt kjöri að afloknum sveitarstjórnarkosningum í samræmi við 5. gr. samþykkta sambandsins. Jafnframt situr sveitarstjóri þingið.

6.Fundargerð 102. fundar stjórnar SSNV frá 9. janúar 2024

Málsnúmer 2401028Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:08.

Var efnið á síðunni hjálplegt?