Landbúnaðarráð

206. fundur 10. janúar 2024 kl. 13:00 - 15:04 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólafsdóttir formaður
  • Dagný Ragnarsdóttir varaformaður
  • Ingveldur Linda Gestsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Dagbjört Diljá Einþórsdóttir
  • Ármann Pétursson varamaður
    Aðalmaður: Guðrún Eik Skúladóttir
  • Halldór Pálsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir Sveitarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og byrjaði á að bjóða Dagnýju Ragnarsdóttur nýjan varaformann ráðsins velkomna til starfa.

1.Refaskyttur koma til fundar

Málsnúmer 2312044Vakta málsnúmer

Kl. 13:00 komu til fundar við ráðið fulltrúar refaveiðimanna í sveitarfélaginu, þeir Benedikt Guðni Benediktsson, Björn Viðar Unnsteinsson, Jóhannes Óskar Sigurbjörnsson, Þorbergur Guðmundsson, Sigfús Heiðar Árdal Jóhannsson og Bjarni Kristmundsson.
Rætt var um fyrirkomulag refaveiða í sveitarfélaginu, grenjavinnslu og vetrarveiði. Landbúnaðarráð þakkar veiðimönnum góðar umræður.
Gestir véku af fundi kl. 13:58.

2.Starfsáætlun landbúnaðarráðs 2024

Málsnúmer 2312043Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að starfsáætlun landbúnaðarráðs fyrir árið 2024. Í áætluninni eru helstu verkefni ráðsins tilgreind. Ráðið samþykkir framlögð drög.

Fundi slitið - kl. 15:04.

Var efnið á síðunni hjálplegt?