Húsnæðisáætlun 2024

Málsnúmer 2310064

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1194. fundur - 23.10.2023

Farið yfir forsendur vegna uppfærslu á húsnæðisáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2024-2033. Sveitarstjóra er falið að ljúka við gerð áætlunarinnar og leggja fyrir byggðarráð að nýju.

Byggðarráð - 1201. fundur - 08.01.2024

Lögð fram drög að húsnæðisáætlun Húnaþings vestra fyrir árin 2024-2033. Byggðarráð samþykkir drögin og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 377. fundur - 11.01.2024

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi drög að húsnæðisáætlun fyrir árin 2024-2033.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?