Sveitarstjórn

377. fundur 11. janúar 2024 kl. 15:00 - 15:41 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Þorleifur Karl Eggertsson oddviti
  • Magnús Magnússon varaoddviti
  • Sigríður Ólafsdóttir aðalmaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Þorgrímur Guðni Björnsson aðalmaður
  • Ingimar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Byggðarráð - 1201

Málsnúmer 2312006FVakta málsnúmer

Fundur haldinn 8. janúar sl. Fundargerð í 11 liðum. Formaður kynnti.

4. dagskrárliður, sala á bifreiðinni YB-350 (2401010)
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9. dagskrárliður, umsókn um lóðina Kirkjuhvammsveg 4 (2401002)
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

2.Skipulags- og umhverfisráð - 364

Málsnúmer 2401001FVakta málsnúmer

Fundur haldinn 4. janúar sl. Fundargerð í 2 liðum. Formaður kynnti.




Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

3.Félagsmálaráð - 251

Málsnúmer 2312004FVakta málsnúmer

Fundur haldinn 3. janúar sl. Fundargerð í 4 liðum. Oddviti kynnti.

Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Landbúnaðarráð - 206

Málsnúmer 2312007FVakta málsnúmer

Fundur frá 10. janúar sl. Fundargerð í 2 liðum. Formaður kynnti.

Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Reglur um sölu á lausafé Húnaþings vestra og undirstofnana

Málsnúmer 2401005Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir reglur um sölu á lausafé Húnaþings vestra og undirstofnana með áorðnum breytingum.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Ingimar Sigurðsson vék af fundi kl. 15:12.

6.Leiga á túni og beitarlandi Ytri-Völlum

Málsnúmer 2310097Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir samning um leigu á túni og beitarlandi að Ytri-Völlum til Indriða Karlssonar til fimm ára með þeirri breytingu að áframhaldandi forleiguréttur að samningi loknum er felldur niður."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
Ingimar Sigurðsson kom til fundar að nýju kl. 15:13.

7.Leiga á beitarlandi Ytri-Völlum

Málsnúmer 2311001Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir samning um leigu á beitarlandi að Ytri-Völlum til Aðalheiðar Sveinu Einarsdóttur til fimm ára með þeirri breytingu að áframhaldandi forleiguréttur að samningi loknum er felldur niður."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Prókúra Hitaveitu Húnaþings vestra

Málsnúmer 2401013Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn veitir Unni Valborgu Hilmarsdóttur, kt. 160673-3119, Brekkugötu 8, 530 Hvammstanga prókúru fyrir Hitaveitu Húnaþings vestra. Umboðið gildir á meðan Unnur Valborg er sveitarstjóri Húnaþings vestra, en samkvæmt 4. mgr. 47. gr. samþykktar um stjórn Húnaþings vestra er sveitarstjóri prókúruhafi Húnaþings vestra.
Með vísan til 4. og 5. mgr. 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 heimilar sveitarstjórn sveitarstjóra að veita eftirtöldum starfsmanni Húnaþings vestra prókúruumboð fyrir Hitaveitu Húnaþings vestra:
Elín Jóna Rósinberg, kt. 250477-3259, Hlíðarvegi 24, 530 Hvammstanga. Sveitarstjórn samþykkir að sveitarstjóri veiti framangreindum starfsmanni fullt prókúruumboð í samræmi við téð lagaákvæði. Umboðið gildir meðan viðkomandi gegnir starfi sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs hjá sveitarfélaginu en þó ekki lengur en til loka núverandi kjörtímabils. Jafnframt eru eldri prókúruumboð starfsmanna annarra en sveitarstjóra, sem kunna að hafa verið útgefin, úr gildi fallin.“

9.Samþykkt um tímabundinn afslátt af gatnagerðargjöldum

Málsnúmer 2401014Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir samþykkt um tímabundinn afslátt af gatnagerðargjöldum árið 2024. Afslátturinn nær til eftirtalinna lóða á Hvammstanga, þ.e. Bakkatúns 3, 5 og 7, Grundartúns 2 og 17 og Hlíðarvegar 21. Afslátturinn nær einnig til lóðanna Teigagrundar 7 og Gilsbakka 1-3 á Laugarbakka.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

10.Húsnæðisáætlun 2024

Málsnúmer 2310064Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi drög að húsnæðisáætlun fyrir árin 2024-2033.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

11.Skýrsla sveitarstjóra

Málsnúmer 2311018Vakta málsnúmer

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta reglulega sveitarstjórnarfundi. Skýrslan var flutt munnlega og til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:41.

Var efnið á síðunni hjálplegt?