Leiga á túni og beitarlandi Ytri-Völlum

Málsnúmer 2310097

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1196. fundur - 06.11.2023

Á grundvelli forleiguákvæðis til fimm ára í gildandi leigusamningi óskar Indriði Karlsson eftir áframhaldandi leigu túns og beitarlands í landi Ytri-Valla. Sveitarstjóra er falið að gera drög að nýjum leigusamningi og leggja fyrir byggðarráð.

Byggðarráð - 1201. fundur - 08.01.2024

Áður á dagskrá 1196. fundar byggðarráðs. Lögð fram drög að endurnýjuðum leigusamningi til fimm ára við Indriða Karlsson vegna leigu á túni og beitarlandi í landi Ytri-Valla. Byggðarráð samþykkir samninginn og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 377. fundur - 11.01.2024

Ingimar Sigurðsson vék af fundi kl. 15:12.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir samning um leigu á túni og beitarlandi að Ytri-Völlum til Indriða Karlssonar til fimm ára með þeirri breytingu að áframhaldandi forleiguréttur að samningi loknum er felldur niður."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
Ingimar Sigurðsson kom til fundar að nýju kl. 15:13.
Var efnið á síðunni hjálplegt?