Breyting á deiliskipulagi Búlands á lóð Búlands 6

Breyting á deiliskipulagi Búlands á lóð Búlands 6

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sín þann 13. júní 2024 að

auglýsa breytingar á deiliskipulagi Búlands á lóð Búlands 6.

 

Um er að ræða stækkun lóðar frá 1.609m² í 4648 m² ásamt byggingarreit til norðausturs.

Afmörkun skipulagssvæðis stækkar úr 9.6 ha í 9.7 ha til austurs til samræmis við stækkun lóðrinnar.

Breytingin er í samræmi við aðalskipulag Húnaþings vestra 2014-2026 og fellur að þeim markmiðum sem sett eru fram í aðalskipulagninu.

Tillöguna ásamt greinagerð er hægt að nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins hunathing.is (hér) og skipulagsgátt. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á koma athugasemdum á framfæri frá 31. júlí – 13. september 2024 í gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, einnig á netfangið skipulagsfulltrui@hunathing.is eða skriflega stílað á skipulagsfulltrúa Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.

Frestur til að skila inn athugasemdum eða ábendingum rennur út 13.september 2024.

 

Bogi Kristinsson Magnusen,

skipulags- og byggingafulltrúi Húnaþings vestra.

Var efnið á síðunni hjálplegt?