Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Leikskólinn Ásgarður auglýsir:

  • Tvö ótímabundin 100% störf frá 16. júlí 2025
  • Tvö tímabundin 100% störf frá 16. júlí 2025 til 3. júlí 2026

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða aðra menntun sem nýtist í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Áhugi á að starfa með börnum
  • Fagmennska og lausnamiðuð hugsun
  • Skipulagshæfileikar
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Gleði og jákvæðni

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/

Hugmyndafræði skólans byggir á vali og hópastarfi. Uppeldisstefna Húnaþings vestra er Jákvæður agi.

Umsóknafrestur er til 8. apríl næstkomandi. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast í leikskólann Ásgarð, Garðavegi 7, 530 Hvt. eða rafrænt á leikskoli@hunathing.is

Frekari upplýsingar veitir Kristinn Arnar Benjamínsson, 451-2343 eða 845-1122

 

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.

Var efnið á síðunni hjálplegt?