Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Við leikskólann Ásgarð eru þrjár stöður deildarstjóra lausar:

  • Yngrastig
  • Miðstig
  • Eldrastig

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstakling með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum.

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða aðra menntun sem nýtist í starfi.
  • Áhuga á að starfa með börnum.
  • Fagmennska og lausnamiðuð hugsun.
  • Skipulagshæfileika.
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Gleði og jákvæðni.

 

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/

Hugmyndafræði skólans byggir á vali og hópastarfi. Uppeldisstefna Húnaþings vestra er Jákvæður agi.

Umsóknafrestur er til 24. maí næstkomandi og mun viðkomandi hefja störf 15. ágúst. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast í leikskólann Ásgarð, Garðavegi 7, 530 Hvt. eða rafrænt á leikskoli@hunathing.is.

Frekari upplýsingar veitir Kristinn Arnar Benjamínsson, 451-2343 eða 845-1122

 

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi

Var efnið á síðunni hjálplegt?