Helstu verkefni:
Almenn afgreiðsla og uppgjör og þjónustu við gesti íþróttamiðstöðvar og sundlaugar
Öryggisgæsla á útisvæði og búningsklefum
Þrif á húsnæði íþróttamiðstöðvar og sundlaugar
Eftirlit með öryggiskerfum.
Hæfniskröfur:
Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri
Rík þjónustulund og samstarfsvilji.
Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf sundstaða skv. reglum um öryggi á sundstöðum
Umsækjandi þarf að vera sjálfstæður í störfum og eiga auðvelt með að taka ákvarðanir og geta brugðist skjótt við ef slys ber að höndum.
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun júní og starfa til loka ágúst.
Laun eru samkvæmt kjarasamninga launarnefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2022
Áhugasamir vinsamlegast sendi umsókn, ásamt ferilskrá á netfangið: tanja@hunathing.is eða skili umsókn á skrifstofu Húnaþings vestra.
Nánari upplýsingar gefur Tanja Ennigarð íþrótta- og tómstundafulltrúi á netfanginu tanja@hunathing.is