Íbúafundur um sameiningu Húnaþings vestra og Dalabyggðar

Verkefnisstjórn um óformlegar viðræður um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra boðar til íbúafunda í Dalabúð þann 8. apríl kl. 17:00-19:00 og í Félagsheimilinu á Hvammstanga þann 9. apríl kl. 17:00-19:00.

Á fundunum verður farið yfir stöðu viðræðnanna og leitað eftir sjónarmiðum íbúa varðandi hugsanlega sameiningu.

Dagskrá:

  1. Kynning á stöðu sameiningaviðræðna
  2. Vinnustofa um sameiningarmál, tækifæri og áskoranir

Við hvetjum íbúa til að mæta á fundinn og taka virkan þátt í samtalinu.

Kynningunni verður deilt á netinu. Slóð á fundinn verður birt á heimasíðum sveitarfélaganna á fundardag.

Að loknum fundum verður boðið upp á súpu og brauð.

Verkefnisstjórn um óformlegar sameiningarviðræður Dalabyggðar og Húnaþings vestra

Var efnið á síðunni hjálplegt?