Byggðarráð

1190. fundur 25. september 2023 kl. 08:30 - 11:46 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Friðrik Már Sigurðsson varaformaður
  • Magnús Magnússon formaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
  • Sigríður Ólafsdóttir varamaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varamaður
  • Þorleifur Karl Eggertsson oddviti
  • Þorgrímur Guðni Björnsson varamaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Starfsáætlanir forstöðumanna.

Málsnúmer 2308025Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar. Byggðarráð þakkar forstöðumönnum greinagóðar áætlanir og augljósan metnað fyrir sínum stofnunum.

2.Styrkbeiðnir

Málsnúmer 2308025Vakta málsnúmer

Farið yfir styrkbeiðnir sem borist hafa vegna ársins 2024.

3.Bakkatún 2 frágangur gatnagerðar vegna fjárhagsáætlunar árið 2024.

Málsnúmer 2309036Vakta málsnúmer

Erindi frá Guðrúnu Ragnarsdóttur þar sem óskað er eftir að lokið verði við gatnagerð við Bakkatún. Byggðarráð þakkar erindið. Afstaða verður tekin til erindisins í tengslum við lokaafgreiðslu áætlunar um fjárfestingar ársins 2024.
Bætt á dagskrá.

4.Niðurstaða útboðs sorphirðu 2023.

Málsnúmer 2308016Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri gerði grein fyrir samskiptum við ráðgjafa vegna útboðs á sorphirðu og meðhöndlun úrgangs. Tvö tilboð bárust í verkið frá Terra umhverfisþjónustu og Íslenska gámafélaginu.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Byggðarráð samþykkir að hafnar verði samningsviðræður við lægstbjóðanda, Terra umhverfisþjónustu hf., á grundvelli 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 11:46.

Var efnið á síðunni hjálplegt?