Upphafsforsendur fjárhagsáætlunar 2024

Málsnúmer 2308025

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1185. fundur - 14.08.2023

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri og Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fóru yfir tillögur að helstu forsendum fyrir fjárhagsáætlunarvinnu ársins 2024, ásamt 3ja ára áætlun.

Veituráð - 43. fundur - 15.09.2023

Sveitarstjóri fór yfir samanburð gjaldskráa nokkurra vatnsveitna. Ljóst er að notkunargjald stórnotenda Vatnsveitu Húnaþings vestra er umtalsvert lægra en þekkist víða annarsstaðar. Veituráð beinir því til sveitarstjórnar að rúmmetragjald til stórnotenda verði hækkað umfram verðlagshækkanir í gjaldskrá ársins 2024. Jafnframt beinir veituráð því til sveitarstjórnar að undirbúin verði gjalddtaka fyrir notkun vatns til allra annarra nota en heimilisnota í samræmi við 7. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004.

Byggðarráð - 1190. fundur - 25.09.2023

Lagðar fram til kynningar. Byggðarráð þakkar forstöðumönnum greinagóðar áætlanir og augljósan metnað fyrir sínum stofnunum.

Byggðarráð - 1190. fundur - 25.09.2023

Farið yfir styrkbeiðnir sem borist hafa vegna ársins 2024.

Félagsmálaráð - 248. fundur - 27.09.2023

Starfsáætlun Fjölskyldusviðs 2024. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir helstu áhersluþætti í starfsáætlun 2024.

Byggðarráð - 1193. fundur - 16.10.2023

Farið var yfir stöðu vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024 og þriggja ára áætlunar fyrir árin 2025-2027. Sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnslusviðs falið að vinna málið áfram og ganga frá fjárhagsáætlun til fyrri umræðu þann 24. október nk.

Sveitarstjórn - 373. fundur - 24.10.2023

Oddviti setti fund.
GJALDSKRÁ FASTEIGNAGJALDA OG ÚTSVARS
Lögð fram eftirfarandi tillaga að gjaldskrá fasteignagjalda og útsvars árið 2024, ásamt reglum um afslátt að fasteignaskatti:
Útsvar






14,74 %

Fasteignaskattur A-gjald




0,475 % af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur B-gjald




1,32 % af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur C-gjald




1,32 % af fm. húss og lóðar
Lóðarleiga, almennt gjald




10,5 kr. pr. m2
Lóðarleiga, ræktað land




1,46 kr. pr. m2









Holræsagjald






0,21% af fm.húss og lóðar
Vatnsskattur






0,27% af fm. húss og lóðar
Aukavatnsskattur





25,0 kr. m3

Hreinsun rotþróa:
0-2000 lítra






17.450 kr. pr. þró
2001-4000 lítra




21.500 kr. pr. þró
4001-6000 lítra




23.500 kr. pr. þró
6001 lítra og stærri





5.930 kr. pr. m3


Sorpgjald á íbúðarhúsnæði, regluleg sorphirða.
100.000 kr.
Sorpeyðingargjald, sumarbústaðir og íbúðir í dreifbýli
þar sem ekki er hirt sorp.



43.000 kr.



Lóðarleigu og fasteignaskatt skv. A-, B- og C gjaldi skal innheimta frá fyrstu skráningu hjá Fasteignamati ríkisins, en holræsagjald, vatnsskatt og sorpgjöld skal innheimta frá þeim tíma að fasteign hefur verið skráð með byggingarstig 4.

Gjalddagar
Gjalddagi gjalda undir kr. 20.000 er 1. maí.
Gjalddagar gjalda sem eru á bilinu kr. 20.001-38.000 eru 1. apríl og 1. júlí.

Fasteignagjöld eigna sem eru hærri en kr. 38.000 hafa 8 gjalddaga, frá 1. febrúar 2024 til 1. september 2024.


Reglur um afslátt af fasteignaskatti árið 2024.

Reglur um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega eru vegna íbúðarhúsnæðis þeirra til eigin nota og fyrir þá sem eiga lögheimili í Húnaþingi vestra. Afslátturinn er tekjutengdur og miðaður við árstekjur 2022 samkvæmt skattframtali 2023, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekjur og tekur einungis til fasteignaskatts. Hámark afsláttar er kr. 82.000.

Tekjuviðmiðun:
Fyrir einstaklinga:
a)
Með heildartekjur allt að kr. 4.539.000 fær 100% afslátt, þó að hámarki kr. 82.000.
b)
Með tekjur umfram kr. 6.125.000 enginn afsláttur.
Fyrir hjón og samskattað sambýlisfólk:
a)
Með heildartekjur allt að kr. 6.125.000 fær 100% afslátt, þó að hámarki kr. 82.000.
b)
Með heildartekjur umfram kr. 8.100.000 enginn afsláttur.

Hlutfallslegur afsláttur er veittur samkvæmd framangreindu tekjubili.

Skilyrði fyrir niðurfellingu er að viðkomandi búi sjálfur í húsnæðinu og hafi ekki af því leigutekjur. Sé fasteign skráð með leyfi til heimagistingar fellur afsláttur af fasteignagjöldum með öllu niður árið 2024.

Í tilfelli hjóna eða sambýlisfólks, ræður aldur þess sem fyrr verður 67 ára án tillits til þess hvort þeirra er skráð fyrir eigninni.

Við andlát maka styrkir sveitarsjóður eftirlifandi um sömu upphæð og nemur álögðum fasteignaskatti ársins að fullu.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

GJALDSKRÁR TIL EINNAR UMRÆÐU
Lögð fram tillaga að gjaldskrá félagsþjónustu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Grunnskóla Húnaþings vestra, dreifnáms og fjarnámsstofu.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Leikskólans Ásgarðs.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Tónlistarskóla Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá bóka- og héraðsskjalasafns Húnaþings vestra og Félagsmiðstöðvarinnar Óríon.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Slökkviliðs Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá geymslusvæða í Grænulaut.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Félagsheimilisins á Hvammstanga.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá þjónustumiðstöðvar.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

GJALDSKRÁR TIL FYRRI UMRÆÐU
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hirðu, móttöku- og flokkunarstöð úrgangs í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá sorphirðu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hreinsun og losun rotþróa í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hvammstangahöfn, hafnarsjóð.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Hitaveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Vatnsveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Brunavarna Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá gatnagerðargjalda.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónustugjalda skipulags- og byggingarfulltrúa.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Sveitarstjórn - 373. fundur - 24.10.2023

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að vísa framlagðri fjárhagsáætlun fyrir 2024 ásamt 3ja ára áætlun fyrir árin 2025 - 2027 fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki til síðari umræðu í sveitarstjórn þann 9. nóvember nk.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð upplesin og samþykkt.

Sveitarstjórn - 374. fundur - 09.11.2023

GJALDSKRÁR TIL SÍÐARI UMRÆÐU
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hirðu, móttöku- og flokkunarstöð úrgangs í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá sorphirðu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hreinsun og losun rotþróa í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hvammstangahöfn, hafnarsjóð.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Hitaveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Vatnsveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Brunavarna Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá gatnagerðargjalda.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónustugjalda skipulags- og byggingarfulltrúa.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Sveitarstjórn - 374. fundur - 09.11.2023

Lögð fram til síðari umræðu tillaga að fjárhagsáætlun sveitarsjóðs og undirfyrirtækja fyrir árið 2024, ásamt 3ja ára áætlun fyrir 2025 - 2027. Lögð fram svohljóðandi tillaga:

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir framlagða fjárhagsáætlun fyrir árið 2024, ásamt 3ja ára áætlun fyrir árin 2025 - 2027.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

GREINARGERÐ MEÐ FJÁRHAGSÁÆTLUN 2024
Þegar unnið var í fjárhagsáætlun ársins 2023 var stuðst við þjóðhagsspá að sumri, útgefinni af Hagstofu Íslands 27. júní 2022. Á þeim tíma var spáð 4,9% verðbólgu árið 2023 og 3,3% árið 2024 og að hún myndi nálgast 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands frá árinu 2025. Í október 2022 var verðbólga hins vegar 9,3% og því orðnar heldur minni líkur á því að spáin myndi standast. Því var gert ráð fyrir 6,3% verðbólgu árið 2023 á lánasafn Húnaþings vestra. Verðbólgan í október 2023 var 7,9%. Þessi háa verðbólga hefur veruleg áhrif á fjárhag Húnaþings vestra og ber fjárhagsáætlun 2024, ásamt 3ja ára áætlun þess veruleg merki.

Í fjárhagsáætlun ársins 2023 var gert ráð fyrir 250 milljóna lántöku eignasjóðs. Var fjármagnskostnaður ársins 2023 áætlaður 104,8 milljónir og 82,5 árið 2024. Þegar áhrif hærri verðbólgu umfram áætlun eru skoðuð á lánasafnið, yrði fjármagnskostnaður ársins 2023 117,5 milljónir og 98,4 milljónir árið 2024. Því hefur verið brugðið á það ráð að ganga frekar á handbært fé en auka á lántökur sveitarfélagsins. Takist það má áætla að hægt verði að lækka fjármagnskostnað samstæðunnar samtals um 69,5 milljónir á árunum 2023-2027.

Fjármagnskostnaður hefur haft veruleg áhrif á vinnu við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2024. Á upphafsmetrum fjárhagsáætlunarvinnunnar voru forstöðumenn upplýstir um stöðuna, en til að verja störf og þjónustustig Húnaþings vestra er farin sú leið að draga úr öllum framkvæmdum, bæði viðhaldsverkefnum og nýframkvæmdum. Jafnframt er áformað að selja eignir til að bæta stöðu handbærs fjár í samræmi við niðurstöðu starfshóps um eignir sveitarfélagsins sem lögð var fram á 371. fundi sveitarstjórnar þann 14. september sl. Forstöðumenn eru meðvitaðir um áhrif fjármagnskostnaðar á rekstur sveitarfélagsins og sýndu þeir stöðunni mikinn skilning. Allir sem einn lögðu þeir sín lóð á vogarskálarnar til að koma með hugmyndir um hvaða leiðir væru færar til að vernda störf og þjónustustig í sveitarfélaginu. Sveitarstjórn Húnaþings vestra þakkar þeim fyrir ómetanlegt framlag í þessari vinnu.

Ekki er einungis óvissa um þróun verðbólgu komandi ára sem hefur mikil áhrif á fjárhag sveitarfélagsins. Gildandi kjarasamningar eru allir til skamms tíma og renna langflestir út strax á vordögum 2024.

Útsvarsprósenta ársins 2024 verður óbreytt frá núlíðandi ári, eða 14,74%. Samkvæmt áætlun munu útsvarstekjur hækka um 8,66% frá árinu 2023, en 0,25% útsvarshlutans renna til málefna fatlaðs fólks. Jákvæð teikn eru á lofti um hækkandi útsvarstekjur sveitarfélagsins. Hins vegar eru útsvarstekjur pr. íbúa í Húnaþingi vestra mjög lágar, en þegar útsvar fyrstu 10 mánuði ársins 2023 er reiknað út pr. íbúa eru útsvarstekjur kr. 496.964. Á sama tíma eru útsvarstekjur pr. íbúa hjá Sveitarfélaginu Skagaströnd kr. 593.718, Skagafirði kr. 572.294 og Húnabyggð kr. 531.200.

Álagning fasteignagjalda er hækkuð úr 0,4% árið 2023 í 0,475% árið 2024 en hæst má álagningin vera 0,65% með fullnýtingu álagsheimildar.Með þessu færist gjaldskráin nær gjaldskrá fasteignagjalda í sveitarfélögunum í kringum okkur. Samhliða þessu eru tekjuviðmið reglna um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega hækkuð. Áætlaðar tekjur vegna fasteignagjalda hækka um 25,21% á milli ára.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra ákvað að gjaldskrárhækkanir yrðu almennt að öðru leyti hóflegar fyrir árið 2024, eða um 5,5%. Önnur sveitarfélög hafa mörg hver gengið enn lengra og eru með áform um að hækka sínar gjaldskrár um 7,5-8%.

Þrátt fyrir að almennt séu gjaldskrár hækkaðar um 5,5%, hækkar þó hreinsun rotþróa umfram það, en erfiðlega hefur gengið að láta málaflokkinn standa undir sér. Gjaldskráin eins og hún er nú lögð fram gerir ráð fyrir óbreyttum sorphirðugjöldum frá árinu 2023. Niðurstaða sorpútboðs sem var farið í sameiginlega með Skagabyggð og Sveitarfélaginu Skagaströnd er enn ekki orðin ljós. Þegar niðurstaða liggur fyrir mun gjaldskrá sorphirðu verða endurskoðuð.

Samkvæmt þeirri áætlun sem hér er lögð fram verður rekstrarafkoma Húnaþings vestra á árinu 2024 jákvæð um 2,7 milljónir, eftir hallarekstur ársins 2023 (-82,7 millj.) og ársins 2022 (-94,0 millj.). Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir áframhaldandi hallarekstri á málefnum fatlaðs fólks (48,4 millj.), mikilli hækkun lífeyrisskuldbindingar (22,3 millj.) og miklum fjármagnskostnaði (75,6 millj.).

Sveitarstjórn Húnaþings vestra leggur sem fyrr mikið upp úr stuðningi við íþrótta- og tómstundastarf barna. Sveitarfélagið greiðir áframhaldandi fjárframlag til USVH, sem útdeilir því fjármagni til íþróttafélaganna í sveitarfélaginu sem gerir það að verkum að kostnaður foreldra vegna íþróttaiðkunar barna í Húnaþingi vestra er með því lægsta sem gerist á landinu. Frístundastyrkur til foreldra 6 - 18 ára barna verður áfram kr. 20.000, sem foreldrar geta nýtt á móti greiðslu vegna tómstunda barna. Íþróttafélögin, sem njóta ekki eingöngu fjárhagslegs styrks frá sveitarfélaginu heldur einnig gjaldfrjálsra afnota af íþróttamannvirkjum, bjóða upp á afar fjölbreytt íþróttastarf. Húnaþing vestra greiðir líkt og undanfarin ár akstursstyrki til foreldra í dreifbýli sem þurfa að keyra börn sín sérstaklega til og frá æfingum.

Húnaþing vestra veitir fjölmörgum félagasamtökum og menningarverkefnum styrki á árinu 2024 að fjárhæð alls 14,1 milljón króna. Því til viðbótar eru greiddir styrkir til leiklistastarfs, styrkir vegna fasteignagjalda og hitaveitu til félaga, afnota íþróttafélaga af íþróttamannvirkjum o.fl.

Í fjárhagsáætlun ársins 2024 er gert ráð fyrir að áfram verði fjármagni veitt í Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra sem stofnaður var árið 2014. Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvöðla- og nýsköpunarstarf í sveitarfélaginu. Sjóðurinn hefur sannað gildi sitt og á tímum sem þessum er mikilvægt að leggja áherslu á nýsköpun og atvinnuþróun.

Fjárfestingum verður haldið í algjör lágmarki í ljósi ytri áhrifa á fjárhagsstöðu Húnaþings vestra. Áfram verður haldið með endurnýjun dreifikerfis hitaveitu á Hvammstanga og komið upp varastofnlögn inn á staðinn, sem er verk sem ekki náðist að fara í á árinu 2023 þar sem engin tilboð bárust í verkið. Lokafrágangur við viðbyggingu grunnskólans mun einnig fara fram árið 2024 og áframhaldandi endurbætur á skólalóð. Ráðist verður í uppsetningu kalds potts við sundlaugina ásamt því að áformað er að hefja framkvæmdir við endurbætur á íbúðum aldraðra í Nestúni.

Helstu forsendur fjárhagsáætlunarinnar 2024 eru eftirfarandi:

Fjármagnsliðir 2024 eru áætlaðir 105,9 milljónir, fara lækkandi í 3ja ára áætlun og verða kr. 52,6 milljónir 2027. Rétt er að geta þess að þeir voru 141,3 milljónir í ársreikningi 2022 og eru áætlaðir 105,5 milljónir í útkomuspá 2023.

Rekstrarafkoma 2024 er áætluð 2,7 milljónir, eftir 85,9 milljóna neikvæða rekstrarafkomu 2022 og áætlaða 82,7 milljóna neikvæða rekstrarafkomu í útkomuspá fyrir árið 2023.

Fjárfestingar 2024 eru áætlaðar 35,5 milljónir, en 111 milljónir árið 2025.

Lántaka 2024 er áætluð 100 milljónir, sem og árin 2025 og 2026.
Afborganir langtímalána 2024 eru áætlaðar 109,8 milljónir.

Skuldahlutfall 2024 er áætlað 68,7% og verður rétt rúm 70% árin 2025-2027.

Veltufé frá rekstri 2024 er áætlað 136 milljónir og fer hækkandi samkvæmt 3ja ára áætlun.

Veltufjárhlutfall 2024 er áætlað 1,31 og verður svipað árið 2025.
Handbært fé 2024 er áætlað 193 milljónir og svipað árið 2027.

Þrátt fyrir þrönga stöðu á komandi ári líta árin þar á eftir mun betur út. Þriggja ára áætlun sveitarsjóðs og undirfyrirtækja sýnir að með lækkandi verðbólgu og áhrifum þess á fjármagnskostnað muni strax á árinu 2025 gefast rými til framkvæmda að nýju. Miðað við framlagða áætlun uppfyllir sveitarsjóður öll viðmið Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga.

Eins og fram hefur komið var við vinnu við gerð áætlunarinnar allt kapp lagt á að verja bæði störf og þjónustustig. Stór ástæða þess að það tókst er ábyrgur rekstur undanfarinna ára og ekki síst góð samvinna við forstöðumenn stofnana sveitarfélagsins. Vill sveitarstjórn ítreka þakkir til þeirra fyrir sína góðu vinnu og auðsýndan metnað fyrir sínum stofnunum.

Landbúnaðarráð - 205. fundur - 06.12.2023

Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir fjárhagsaáætlun ársins 2024 og fjárhagsramma ráðsins. Landbúnaðarráð þakkar Elínu Jónu greinargóða yfirferð.

Sveitarstjórn - 380. fundur - 10.04.2024

Á 379. fundi sveitarstjórnar var sveitarstjóra falið að undirbúa gjaldskrárbreytingar og leggja fyrir næsta fund sveitarstjórnar vegna stöðugleikasamninga, sérstaklega þær gjaldskrár sem varða barnafjölskyldur. Á grundvelli yfirferðar er efirfarandi tillaga lögð fram:
„Eftirfarandi gjaldskrár verða teknar upp fyrir árið 2024 og þeir liðir er sérstaklega varða barnafjölskyldur hækkaðir um 2,5% frá árinu 2023 í stað 5,5% og taka almennt gildi þann 1. júní nk. Gjaldskrárbreytingarnar taka gildi með þeim fyrirvara að niðurstaða kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við stéttarfélög starfsmanna sveitarfélagsins verði í takti við kjarasamninga á almenna vinnumarkaðnum.
Gjaldskrá Leikskólans Ásgarðs verður lækkuð í heild sinni og hækkar um 2,5% frá árinu 2023.
Gjaldskrá Grunnskóla Húnaþings vestra, dreifnáms og fjarfundastofu breytist með þeim hætti að gjald vegna mötuneytis grunnskólanema verður afnumið frá hausti og frístund lækkar frá haustönn. Verð vegna sumarfrístundar verður lækkað frá áður útgefinni gjaldskrá frá 1. júní. Aðrir liðir í gjaldskránni haldast óbreyttir.
Gjaldskrá Tónlistarskóla Húnaþings vestra hækkar um 2,5% frá árinu 2023 frá og með haustönn 2024 vegna þjónustu við börn að 18 ára aldri. Óbreytt gjaldskrá verður vegna hópkennslu sem var nýtt í gjaldskrá fyrir árið 2024, nemenda í forskóla og hljóðfæraleigu en þessi þjónusta hækkaði ekki í upphaflegri gjaldskrá fyrir árið 2024.
Gjaldskrá bóka- og héraðsskjalasafns og félagsmiðstöðvar hækkar um 2,5% frá árinu 2023 og tekur breytingin gildi 1. júní 2024. Breytingin á við um útleigu á félagsmiðstöð, aðrir liðir gjaldskrárinnar eru óbreyttir.
Gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra breytist þann 1. júní vegna árskorta, en gjald vegna árskorta mun verða sama fjárhæð og hún var árið 2023. Aðrir liðir gjaldskrárinnar verða óbreyttir.

Jafnframt er lagt til að fjárhæð frístundakorta árið 2024 verði hækkuð úr kr. 20.000 í kr. 25.000. Sveitarstjóra og sviðsstjóra er falið að undirbúa gerð viðauka vegna gjaldskrárbreytinganna þar sem þess er þörf.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Sveitarstjórn - 382. fundur - 13.06.2024

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir reglur um garðslátt fyrir eldri borgara og öryrkja fyrir árið 2024.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Sveitarstjórn - 382. fundur - 13.06.2024

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir breytta gjaldskrá Félagsheimilisins Hvammstanga fyrir árið 2024.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Byggðarráð - 1221. fundur - 26.08.2024

Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti milliuppgjör eftir fyrstu sex mánuði ársins, en framkvæmdaráð fór yfir það á fundi sínum þann 26. ágúst. Rekstur er almennt samkvæmt áætlun.
Var efnið á síðunni hjálplegt?