Fjallskilastjórn Hrútfirðinga

Fjallskilastjórn Hrútfirðinga fjallskilastjórnar haldinn sunnudaginn 11. ágúst 2024 kl. 20:30 Bálkastöðum I.

Fundarmenn

Guðmundur Ísfeld, Brynjar Ottesen og Jón Kristján Sæmundsson

Fundargerð ritaði: Guðmundur Ísfeld

Stjórn hittist til að ræða fjallskilaseðil og yfirfara.

Mat á fjallskilaskyldri vinnu almennt hækkuð um 6% Tölur stilltar af.

Göngur verði 5. sept. og réttað verði 7. sept. laugardag.

Önnur leit fari fram laugardaginn 14. september. Nema veður hamli.

Fyrri heimalandasmölun skal fara fram 28. september og skilarétt

sunnudaginn 29. september kl. 10:00 – Seinni laugardaginn 12. október.

Formanni falið að klára setja upp og senda fjallskilaseðil.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið klukkan 22:10

Var efnið á síðunni hjálplegt?