Fjallskilastjórn Miðfirðinga

Fjallskilastjórn Miðfirðinga fjallskilastjórnar haldinn þriðjudaginn 6. ágúst 2024 kl. 14:00 Staðarbakka.

Fundarmenn

Pétur H. Sigurvaldason, Þórarinn Óli Rafnsson og Valgerður Kristjánsdóttir.

Fundargerð ritaði: Valgerður Kristjánsdóttir

Dagskrá:
1. Niðurjöfnun fjallskila og mat á þeim. Ákveðið að fara í göngur fimmtudaginn 5. september. Réttað verði laugardaginn 7. september, sauðfé um hádegi eða um leið og söfn komi til réttar og hross sunnudaginn 8. september kl 11:00.
2. Heimalandasmölun skal fara fram 28. september og skilarétt sunnudaginn 29. september kl. 13:00.
3. Rætt um mat á fjallskilaskyldri vinnu og ákveðið að hækka hana um 10% frá gjaldskrá 2022.
4. Ekki verður hægt vegna breyttra aðstæðna að bjóða upp á að bændur sleppi sauðfé í söfnunarhólf við Miðfjarðarrétt fyrir skilaréttina.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið klukkan 17.00

Var efnið á síðunni hjálplegt?