Öldungaráð

8. fundur 15. nóvember 2023 kl. 13:00 - 14:46 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Guðmundur Haukur Sigurðsson formaður
  • Sesselja Kristín Eggertsdóttir aðalmaður
  • Gyða Sigríður Tryggvadóttir aðalmaður
  • Ólafur Bergmann Óskarsson aðalmaður
  • Jóna Halldóra Tryggvadóttir aðalmaður
  • Kristbjörg Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Eggert Karlsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Íbúðir aldraða Nestúni-teikningar

Málsnúmer 2311015Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti teikningar að breytingum á íbúðum í Nestúni. Öldungaráð bendir á að hanna þarf vel skipulag á eldhúsi og innréttingar í baðherbergi, m.a. hæð á þvottavél og uppþvottavél.

2.Erindisbréf Öldungaráðs nóvember 2023

Málsnúmer 2311017Vakta málsnúmer

Lagt fram nýtt erindisbréf Öldungaráðs til kynningar.

3.Gott að eldast

Málsnúmer 2310068Vakta málsnúmer

Verkefnið Gott að eldast kynnt og sú vinna sem hafin er vegna þess. Markmið þess er að samþætta þjónustu við eldri borgara undir einum rekstraraðila. Öldungaráð fagnar því að verkefnið sé komið af stað.

4.Starfsáætlun fjölskyldusviðs

Málsnúmer 2310075Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti starfsáætlun fjölskyldusviðs fyrir árið 2024. Öldungaráð er sátt við þau verkefni sem eru á áætlun fjölskyldusviðs.

5.Bjartur lífstíll

Málsnúmer 2311025Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti verkefnið Bjartur lífstíll.

Fundi slitið - kl. 14:46.

Var efnið á síðunni hjálplegt?