Byggðarráð

1191. fundur 02. október 2023 kl. 14:00 - 16:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Friðrik Már Sigurðsson varaformaður
  • Magnús Magnússon formaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá

1.Erindi frá leikskólastjóra

Málsnúmer 2309046Vakta málsnúmer

Lagðar fram hugmyndir leikskólastjóra varðandi ýmis mál í rekstri skólans. Byggðarráð þakkar erindið og vísar því til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

2.Reglur Skagafjarðar um notendasamninga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 382018

Málsnúmer 2309048Vakta málsnúmer

Um er að ræða endurnýjun gildandi reglna í kjölfar nýs samnings við Skagafjörð sem leiðandi sveitarfélags í málefnum fatlaðs fólks. Byggðarráð samþykkir samninginn og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra. Ósk um viðræður um að Húnaþing vestra leggi félaginu til húsnæði fyrir starfsemi félagsins

Málsnúmer 2309055Vakta málsnúmer

Byggðarráð þakkar Félagi eldri borgara erindið. Sveitarstjóra er falin þátttaka í umræðum um húsnæðismál félagsins fyrir hönd sveitarfélagsins.

4.Boð á haustfund Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra 25. október 2023

Málsnúmer 2309056Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri verður fulltrúi Húnaþings vestra á fundinum.

5.Umsókn um almenna leiguíbúð

Málsnúmer 2308004Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir leigu á íbúðinni að Gilsbakka 5 á Laugarbakka til Ingibjargar Ölmu Benjamínsdóttur til tveggja mánaða frá og með 2. október.

6.Niðurstöður Umhverfisdags leik-, grunn og tónlistarskóla

Málsnúmer 2309080Vakta málsnúmer

Byggðarráð þakkar nemendum Grunnskóla Húnaþings vestra frumkvæðið að umhverfisdeginum. Afrakstur dagsins er ekki bara fallegra umhverfi heldur fjöldi tillagna frá unga fólkinu í sveitarfélaginu. Snúa tillögurnar að því hvernig við getum gert betur í umhverfismálum og viðfangsefnum þeim tengdum en ekki síður hvernig við getum þjónustað unga fólkið í sveitarfélaginu betur. Einhverjar tillagnanna eru þegar í vinnslu, aðrar krefjast nokkurs undirbúnings en allar eru þær mikilvægar. Sveitarstjóra er falið að funda með fulltrúum nemenda grunnskólans til að fá frekari upplýsingar og til að upplýsa um stöðu mála.

7.Beiðni Faghóps 3 í Rammaáætlun um fund vegna tilhögunar virkjunarkosts R4311A. Hrútavirkjun

Málsnúmer 2309087Vakta málsnúmer

Óskað er eftir að fundinn sitji sveitarstjóri, fulltrúi meirihluta og fulltrúi minnihluta. Byggðarráð leggur til að faghópurinn komi til fundar við ráðið. Sveitarstjóra er falið að finna hentugan fundartíma.

8.Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sendir yður til umsagnar tillögu til þingsályktunar um réttlát græn umskipti, 3. mál

Málsnúmer 2309079Vakta málsnúmer

Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

9.Fundargerð 933. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18. september 2023

Málsnúmer 2309071Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?