Landbúnaðarráð

203. fundur 04. október 2023 kl. 13:00 - 15:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Halldór Pálsson aðalmaður
  • Ingimar Sigurðsson varaformaður
  • Sigríður Ólafsdóttir formaður
  • Ingveldur Linda Gestsdóttir
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Endurnýjun samninga um grenjavinnslu og minkaveiði 2024

Málsnúmer 2310001Vakta málsnúmer

Samningar um grenjavinnslu og minkaveiði renna út í lok árs 2023. Sveitarstjóra og formanni falið að uppfæra samningana og leggja fyrir næsta fund ráðsins.

2.Vetrarveiði á ref veturinn 2023 2024

Málsnúmer 2310002Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð óskar eftir að fá kr. 1.200.000 í fjárveitingu á árinu 2024 til vetrarveiða á ref. Sveitarstjóra falið að auglýsa eftir aðilum til vetrarveiða á ref með umsóknarfresti til 1. nóvember næstkomandi, með fyrirvara um að fjármagn fáist.

3.Fyrirspurn frá Húnabyggð vegna minkaveiði

Málsnúmer 2309082Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrirspurn frá sveitarstjóra Húnabyggðar vegna mögulegrar samvinnu um átak í eyðingu minks. Formanni og sveitarstjóra falið að óska eftir viðræðum við formenn veiðifélaga í sveitarfélaginu og kanna áhuga á þátttöku og mögulega kostnaðarskiptingu við átakið.

4.Skotveiðieftirlit haustið 2023 á Víðidalstungu-og Arnarvatnsheiði

Málsnúmer 2310004Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi við veiðieftirlitsmann vegna veiðieftirlits haustið 2023. Landbúnaðarráð samþykkir samninginn með áorðnum breytingum

Fundi slitið - kl. 15:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?