Skipulags- og umhverfisráð

375. fundur 03. apríl 2025 kl. 15:00 - 16:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Ingimar Sigurðsson formaður
  • Birkir Snær Gunnlaugsson varaformaður
  • Guðmundur Brynjar Guðmundsson varamaður
Starfsmenn
  • Bogi Kristinsson Magnussen skipulags- og byggingafulltrúi
Fundargerð ritaði: Bogi Kristinsson Magnusen Skipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá
Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir boðaði forföll og varamaður komst ekki.

1.Aðalskipulag Húnaþing vestra 2026-2038

Málsnúmer 2502063Vakta málsnúmer

Tekið er fyrir val á ráðgjafa vegna vinnu við heildarendurskoðun aðalskipulags Húnaþings vestra 2026-2038 í kjölfar sameiginlegs kynningarfundar ráðgjafafyrirtækja fyrir skipulags- og umhverfisnefndar og sveitarstjórnar sem haldinn var á fundi nr. 374.
Skipulags- og umhverfisráð hefur farið yfir val á ráðgjöfum fyrir heildarendurskoðun aðalskipulags Húnaþings vestra 2026-2038. Á fundi ráðsins voru kynningar frá ráðgjöfum Landmótunar, Verkís og Eflu, sem allar voru mjög faglegar og upplýsandi sem kynntar voru á sameiginlegum fundi ráðsins og sveitarstjórn þann 26.03.2025.

Eftir vandlega yfirferð og samanburð á fyrirliggjandi valkostum er það mat ráðsins að samið verði við Landmótun um verkefnið.

Helstu rök fyrir þessari niðurstöðu eru eftirfarandi:

1) Fagleg kynning og skýr framsetning á aðferðarfræði.
Landmótun kynnti á faglegan og skýran hátt þá nálgun sem fyrirtækið leggur til grundvallar í skipulagsvinnu. Í kynningunni var lögð áhersla á stefnumótandi hugsun, ítarlega greiningu og vandaða stefnumótun sem tryggir gott aðalskipulag til framtíðar.

2) Áhersla á samráð og gegnsæja vinnsluaðferð
Í framsetningu ráðgjafans kom skýrt fram hvernig samráð við hagsmunaaðila, íbúa og sveitarfélagið verði háttað í vinnuferlinu. Mikilvægi gagnsæis í ferlinu var sérstaklega tekið fram, sem er lykilatriði í skipulagsvinnu af þessari stærðargráðu.

3) Góð yfirsýn yfir viðfangsefnið og sérsniðnar lausnir.
Landmótun sýndi fram á góða yfirsýn yfir þær áskoranir sem fylgja endurskoðun aðalskipulags Húnaþings vestra. Einnig var lögð áhersla á að laga vinnuferlið að þörfum sveitarfélagsins með hliðsjón af bæði staðbundnum aðstæðum og langtímasýn fyrir þróun byggðar og landnýtingar.

4) Reynsla og þekking á sambærilegum verkefnum.
Landmótun hefur yfir að ráða víðtækri reynslu og sérfræðiþekkingu á sviði skipulagsmála og hefur unnið að sambærilegum verkefnum fyrir önnur sveitarfélög. Ráðið metur það sem mikilvægt að ráðgjafinn hafi sýnt fram á árangursríka nálgun í fyrri verkefnum sem nýtist við heildarendurskoðun aðalskipulags Húnaþings vestra 2026-2038.

Að teknu tilliti til framangreindra atriða telur skipulags- og umhverfisráð rétt að fela Landmótun verkefnið og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja valið og ganga til samninga á grundvelli þess.

Ráðið þakkar ráðgjöfunum fyrir mjög faglega og upplýsandi kynningu á verkefninu.

2.Rekstrarleyfi fyrir Félagsheimilið Hvammstanga

Málsnúmer 2502055Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra óskar eftir umsögn vegna umsóknar Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, um leyfi til reksturs í Félagsheimilinu á Hvammstanga Klapparstíg 4, fyrir veitingaleyfi í flokki III - G (samkomusalir). Umsagnarbeiðnin er lögð fram með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, auk 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja eftirfarandi umsögn á veitingarleyfi fyrir Félagsheimilið Klapparstíg 4 á Hvammstanga í samræmi við 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016.

3.Umsókn um breytingu á deiliskipulagi Kirkjuhvamms

Málsnúmer 2504002Vakta málsnúmer

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kirkjuhvamms. Breytingin felst í hliðrun og stækkun byggingarreita úr 27 m² í 40 m². Jafnframt er gert ráð fyrir fækkun smáhýsa úr níu í átta.
Skipulags- og umhverfisráð hefur fjallað um breytingu á deiliskipulagi Kirkjuhvamms. Breytingin felur í sér fækkun húsa úr 9 í 8, auk minniháttar hliðrunar húsa innan svæðisins. Breytingin hefur engin áhrif á aðliggjandi svæði og telst minniháttar.

Með fækkun og hliðrun húsa fellur breytingin vel að umhverfi svæðisins og gerir skipulagið betra í heild sinni m.a. með bættu aðgengi fyrir fatlaða. Breytingin hefur ekki áhrif á skuggavarp eða sýn sem veldur öðrum óþægindum fyrir svæðið í heild.

Sveitarfélagið er eigandi landsins og aðliggjandi svæðis, og gerir skipulags- og umhverfisráð engar athugasemdir og metur að um óverulegu breytingu á deiliskipulaginu sé að ræða.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna skv.2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?