Byggðarráð

1214. fundur 22. maí 2024 kl. 15:00 - 16:19 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Ósk um stækkun lóðar við Eyri

Málsnúmer 2301027Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Jóhanns Albertssonar og Kolbrúnar Grétarsdóttur um stækkun lóðar við Eyri til samræmis við aðrar smábýlalóðir við Höfðabraut. Byggðarráð samþykkir stækkun lóðarinnar til austurs að Höfðabraut.
Unnur Valborg Hilmasdóttir vék af fundi kl. 15:07.

2.Höfnun umsóknar um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða - Deiliskipulag Borðeyri

Málsnúmer 2405022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Ferðamálastofu þar sem tilkynnt er um höfnun styrksumsóknar vegna deiliskipulags á Borðeyri.

3.Höfnun umsóknar um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða - Deiliskipulag Reykjatanga

Málsnúmer 2405023Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Ferðamálastofu þar sem tilkynnt er um höfnun styrksumsóknar vegna deiliskipulags á Reykjatanga.
Unnur Valborg Hilmarsdóttir kom til fundar að nýju kl. 15:10.

4.Erindi frá verðandi 10. bekk í Grunnskóla Húnaþings vestra

Málsnúmer 2405030Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá verðandi 10. bekkingum við Grunnskóla Húnaþings vestra þar sem þau gera tillögu að því að þau tæmi ruslafötur við grunnskóla og Félagsheimilið Hvammstanga sem lið í fjáröflun sinni fyrir útskriftarferð. Byggðarráð þakkar verðandi 10. bekkingum sýndan áhuga á fegrun nærumhverfis síns. Ráðið samþykkir að veita bekknum 70 þúsund króna styrk til ferðarinnar á þeim forsendum að bekkurinn tæmi ruslafötur í nærumhverfi grunnskólans og Félagsheimilisins Hvammstanga samkvæmt nánara samkomulagi.

5.Lok lóðarleigusamnings vegna Norðurbrautar 30

Málsnúmer 2212015Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Lagastoðar, dags. 8. maí 2024, ásamt fylgiskjölum þar sem fram kemur krafa húseigenda Norðurbrautar 30 um greiðslu vegna eignarinnar. Einnig lagt fram bréf Landslaga, dags. 14. maí 2024 þar sem kröfu húseigenda er hafnað og fyrra tilboð sveitarfélagsins er ítrekað. Frestur til að rýma eignina er framlengdur um mánuð til viðbótar við þá þrjá mánuði sem þegar höfðu verið gefnir.

Byggðarráð staðfestir þá afstöðu sem fram kemur í bréfi Landslaga dags. 14. maí 2024 um uppgjör og skil lóðarinnar í samræmi við niðurstöðu matsgerðar óháðra matsmanna líkt og kveðið er á um í lóðarleigusamningi. Auk þess býður sveitarfélagið að niðurrif og förgun eignarinnar verði á þess kostnað. Sveitarstjóra er falið að ljúka málinu í samræmi við það í samvinnu við lögmann sveitarfélagsins.

Ferli málsins er að lóðarleigusamningur lóðarinnar rann út 28. janúar 2024. Þar sem eignin samræmist ekki gildandi deiliskipulagi frá 2012 og áformuð er íbúðauppbygging á reitnum var þáverandi húseiganda tilkynnt að lóðarleigusamningur yrði ekki endurnýjaður og boðið fasteignamat sem greiðslu fyrir eignina í janúar 2023, þó ekki sé kveðið á um bætur til leigutaka í þeim lóðarleigusamningi sem nýverið rann út. Því höfnuðu nýir húseigendur og voru því kvaddir til dómkvaddir matsmenn sem báðir málsaðilar sammæltust um til að meta sannvirði hússins að teknu tilliti til ástands þess í samræmi við ákvæði eldri lóðarleigusamnings. Mat þeirra lá fyrir í febrúar 2024 og var húseigendum boðið verð í samræmi við matið auk þess að sveitarfélagið tæki á sig kostnað við niðurrif og förgun eignarinnar. Var gefinn þriggja mánaða frestur til að rýma eignina, til 15. maí 2024. Húseigendur kvöddu hins vegar til matsmenn til að meta endurstofnverð eignarinnar, jarðvegsskipti og sokkinn kostnað og gerðu kröfu um greiðslu í samræmi við það. Þeirri kröfu hafnar sveitarfélagið þar sem hún endurspeglar ekki sannvirði hússins og gengur því lengra en lóðaleigusamningur segir til um.

6.Lok lóðarleigusamnings vegna Norðurbrautar 32

Málsnúmer 2212016Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Lagastoðar, dags. 8. maí 2024, ásamt fylgiskjölum þar sem fram kemur krafa húseiganda Norðurbrautar 32 um greiðslu vegna eignarinnar. Einnig lagt fram bréf Landslaga, dags. 14. maí 2024 þar sem kröfu húseiganda er hafnað og fyrra tilboð sveitarfélagsins er ítrekað. Frestur til að rýma eignina er framlengdur um mánuð til viðbótar við þá þrjá mánuði sem þegar höfðu verið gefnir.

Byggðarráð staðfestir þá afstöðu sem fram kemur í bréfi Landslaga dags. 14. maí 2024 um uppgjör og skil lóðarinnar í samræmi við niðurstöðu matsgerðar óháðra matsmanna líkt og kveðið er á um í lóðarleigusamningi. Auk þess býður sveitarfélagið að niðurrif og förgun eignarinnar verði á þess kostnað ásamt því að það sjái um að fjarlægja steyptar þrær og malarhaug við steypusíló, einnig á sinn kostnað. Sveitarstjóra er falið að ljúka málinu í samræmi við það í samvinnu við lögmann sveitarfélagsins.

Ferli málsins er að lóðarleigusamningur lóðarinnar rann út 28. janúar 2024. Þar sem eignin samræmist ekki gildandi deiliskipulagi frá 2012 og áformuð er íbúðauppbygging á reitnum var húseiganda tilkynnt að lóðarleigusamningur yrði ekki endurnýjaður og boðið fasteignamat sem greiðslu fyrir eignina í janúar 2023. Því hafnaði húseigandi og voru því kvaddir til dómkvaddir matsmenn sem báðir málsaðilar sammæltust um til að meta sannvirði hússins að teknu tilliti til ástands þess í samræmi við lóðarleigusamninginn. Mat þeirra lá fyrir í febrúar 2024 og var húseiganda boðið verð í samræmi við matið auk þess að sveitarfélagið tæki á sig kostnað við niðurrif og förgun eignarinnar ásamt því að fjarlægja steyptar þrær og malarhaug við steypusíló. Var gefinn þriggja mánaða frestur til að rýma eignina, til 15. maí 2024. Húseigandi kvaddi hins vegar til matsmenn til að meta endurstofnverð eignanna á lóðinni, jarðvegsskipti og sokkinn kostnað og gerði kröfu um greiðslu í samræmi við það. Þeirri kröfu hafnar sveitarfélagið þar sem hún endurspeglar ekki sannvirði hússins og gengur því lengra en lóðarleigusamningur segir til um.

7.Fundargerð 107. fundar stjórnar SSNV, 7. maí 2024

Málsnúmer 2405027Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

8.Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um lögræðislög (nauðungarvistanir, yfirlögráðendur o.fl.), 925. mál. Umsagnarfrestur til 27. maí nk.

Málsnúmer 2405024Vakta málsnúmer

Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

9.Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldfrjálsar skólamáltíðir), 1114. mál. Umsagnarfrestur til 31. maí nk.

Málsnúmer 2405034Vakta málsnúmer

Um er að ræða frumvarp í tengslum við kjarasamninga sem undirritaðir voru á dögunum. Í frumvarpinu er ríkissjóði veitt heimild til að veita fé í Jöfnunarsjóð vegna niðurgreiðslu gjaldfrjálsra skólamáltíða frá og með hausti 2024. Ekki þykir ástæða til umsagnar um frumvarpið. Hins vegar vill byggðarráð leggja áherslu á að útfærsla Jöfnunarsjóðs á greiðslum til sveitarfélaga verði unnin í nánu samráði við þau og að tillit verði tekið til mismunandi aðstæðna sveitarfélaga til dæmis við kaup á hráefni til framleiðslu máltíðanna, flutningskostnaðar o.s.frv.
Bætt á dagskrá:

10.Mál í samráðsgátt stjórnvalda, landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu, mál nr. S-982024, umsagnarfrestur til 4. júní 2024

Málsnúmer 2405039Vakta málsnúmer

Í samráðsgátt stjórnvalda eru til umsagnar drög að landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu. Er áætlunin unnin af starfshópi sem skipaður var í janúar 2024. Byggðarráð fagnar framlagðri áætlun enda löngu tímabært að endurskoða nálgun til að bregðast við þeim vágesti sem riðan er en gerir athugasemd við tímasetningu á samráði um málið, í miðjum sauðburði. Í áætluninni er fjallað um að með útrýmingu riðu megi leggja niður sauðfjárveikivarnarlínur á ýmsum stöðum. Vill byggðarráð koma á framfæri athugasemd við þau áform þar sem sauðfjárveikivarnarlínur þjóna mikilvægu hlutverki við takmörkun á útbreiðslu garnaveiki sem getur valdið miklum búsifjum og því brýnt að línunum verði við haldið. Ráðið vísar jafnframt í umsögn Félags sauðfjárbænda í Vestur-Húnavatnssýslu og gerir að sinni.

Fundi slitið - kl. 16:19.

Var efnið á síðunni hjálplegt?