Byggðarráð

1210. fundur 08. apríl 2024 kl. 14:00 - 16:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Elín Lilja Gunnarsdóttir sat fundinn í fjarfundi. Elín Jóna Rósinberg vék af fundi kl. 14:01.

1.Tilboð í Engjabrekku

Málsnúmer 2403069Vakta málsnúmer

Tilboð í jörðina Engjabrekku voru opnuð þann 26. mars 2024.
Þrjú tilboð bárust:
Frá Ásmundi Ingvarssyni, kr. 8.111.111.-
Frá Lofti Sveini Guðjónssyni, kr. 10.200.000.-
Frá Þórarni Inga Ólafssyni, kr. 4.150.000.-
Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði hæstbjóðanda. Byggðarráð veitir Unni Valborgu Hilmarsdóttur sveitarstjóra, kt. 160673-3119, fullt og ótakmarkað umboð til að selja fyrir hönd Húnaþings vestra jörðina Engjabrekku fastanr. 2134708. Umboðið nær til undirritunar allra nauðsynlegra skjala vegna sölu á framangreindri eign.
Elín Jóna Rósinberg kom aftur til fundar kl. 14:15.

2.Þjónustustefna Húnaþings vestra

Málsnúmer 2403070Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá sveitarstjóra með tillögu að vinnulagi við gerð þjónustustefnu Húnaþings vestra í samræmi lög nr. 96/2021 sem kveða á um að sveitarfélög skuli setja sér þjónustustefnu fyrir byggðir og byggðarlög sveitarfélags. Byggðarráð samþykkir tillöguna sem gengur út á að þjónustustefna verði samþykkt samhliða fjárhagsáætlun ársins 2025 í nóvember 2024. Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram.

3.Bjarmahlíð, þjónustumiðstöð fyrir þolendur, styrkbeiðni

Málsnúmer 2404082Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni stjórnarformanns Bjarmahlíðar. Ekki er unnt að verða við beiðninni á árinu 2024 en henni er vísað til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2025.

4.Slagorð Húnaþings vestra

Málsnúmer 2403060Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða könnunar á tillögum að slagorði fyrir Húnaþing vestra. Lagðar voru fram fimm tillögur sem fram komu í íbúakönnun sem unnin var haustið 2023. Tillögurnar voru:
Húnaþing vestra - allt til alls
Húnaþing vestra - heimkynni hamingjunnar
Húnaþing vestra - höfðingi heim að sækja
Húnaþing vestra - lifandi samfélag
Húnaþing vestra - þar sem gott er að vera
Flest atkvæði í könnuninni fékk tillagan Húnaþing vestra - lifandi samfélag.
Byggðarráð samþykkir að Húnaþing vestra - lifandi samfélag verði slagorð sveitarfélagsins.

5.Launagreining 2023

Málsnúmer 2404084Vakta málsnúmer

Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir niðurstöðu launagreiningar fyrir árið 2023. Er greiningin hluti af úttekt jafnlaunavottunar sem nú stendur yfir. Byggðarráð þakkar sviðsstjóra greinargóða yfirferð.

6.Beiðni um skipan í starfshóp

Málsnúmer 2404086Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Félags eldri borgara í Húnaþing vestra um að sveitarfélagið skipi aðila í starfshóp með það hlutverk að vinna að uppbyggingu lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara á Miðtúnsreit á Hvammstanga. Byggðarráð fagnar framtakinu og skipar Unni Valborgu Hilmarsdóttur, sveitarstjóra, í starfshópinn.

7.Fundargerð stjórnar Markaðsstofu Norðurlands frá 25. mars 2024

Málsnúmer 2404077Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

8.Umsagnarbeiðni um málefni aldraðra (réttur til sambúðar), mál nr. 138, umsagnarfrestur til 8. apríl 2024.

Málsnúmer 2403064Vakta málsnúmer

Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.
Bætt á dagskrá:

9.Árseikningur Húnaþings vestra 2023

Málsnúmer 2404000Vakta málsnúmer

Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnssýslusviðs, fór yfir drög að ársreikningi sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja fyrir árið 2023. Byggðarráð samþykkir ársreikninginn og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?