Fræðsluráð

246. fundur 30. maí 2024 kl. 15:00 - 17:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir formaður
  • Elísa Ýr Sverrisdóttir aðalmaður
  • Halldór Sigfússon aðalmaður
  • Guðmundur Ísfeld aðalmaður
  • Eygló Hrund Guðmundsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Sameiginleg forvarnaáætlun á Norðurlandi vestra

Málsnúmer 2310070Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fór yfir stöðu sameiginlegrar forvarnaáætlunar For-Nor sem er á lokametrunum. Einnig kynnt dæmi úr áætluninni.

2.Fræðslustjóri að láni

Málsnúmer 2310069Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri kynnti vinnu vegna verkefnisins Fræðslustjóri að láni. Könnun hefur verið send á starfsfólk sveitarfélaganna um áherslur.

3.Viðmið leikskólans Ásgarðs vegna námsleyfa.

Málsnúmer 2405032Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar tillögur leikskólastjóra um viðmið Leikskólans Ásgarðs vegna námsleyfa. Fræðsluráð leggur til að breyta síðasta viðmiði leiskólans með þeim hætti að þeir sem þegar hafa hafið nám, eigi ekki á hættu að þurfa að gera hlé á námi sínu sæki um starfsmaður með lengri starfsaldur. Að öðru leyti eru ekki gerðar athugasemdir við þessi viðmið Leikskólans.

4.Skóladagatal grunnskóla og tónlistarskóla 2024-2025

Málsnúmer 2402050Vakta málsnúmer

Fræðsluráð samþykkir framlagt skóladagatal sem er sameiginlegt Grunnskóla Húnaþings vestra og Tónlistarskóla Húnaþings vestra.

5.Umsókn í Sprotasjóð febrúar 2024

Málsnúmer 2402025Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri kynnti að umsókn í Spotasjóð um verkefni er varðar inngildingu í skólastarfi hafi verið hafnað.

6.Helstu verkefni Fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2024

Málsnúmer 2401004Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fór yfir helstu verkefni fjölskyldusviðs.

7.Fundargerðir farsældarteymis

Málsnúmer 2310067Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir farsældarteymis frá síðasta fundi.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?