Byggðarráð

1208. fundur 18. mars 2024 kl. 14:00 - 16:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Ósk um breytingu á aðalskipulagi 2014-2026

Málsnúmer 2403007Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Höfðabraut ehf. með beiðni um breytingu á aðalskipulagi. Byggðarráð heimilar að hafin verði vinna við breytingar á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014 -2026 á lóð Höfðabrautar 27 á Hvammstanga. Fyrirhuguð breyting snýr að breyttri notkun lóðar úr Iðnaðarlóð (I-2) í verslunar- og þjónustulóð (VÞ). Byggðaráð metur fyrirhugaðar breytingar á gildandi aðalskipulagi séu óverulegar og telur að ekki sé ástæða til meðferðar skv. 30. - 32. gr. skipulagslaga. Breyting þessi mun ekki hafa mikil áhrif á aðliggjandi íbúa né umhverfið í kring. Skipulagsbreyting er í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að vinna málið áfram.

Byggðaráð vill árétta við umsækjanda að skv. gjaldskrá sem tók gildi þann 1. janúar 2024 er innheimt gjald fyrir aðkeypta vinnu vegna breytinga á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Umsókn um lóð

Málsnúmer 2403008Vakta málsnúmer

Hoffell ehf., ásamt Borgarskjóli ehf. og Júlíusi Þór Júlíussyni, sækir um lóðina Lindarveg 1. Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Lindarvegi 1 til Hoffells ehf., Borgarskjóls ehf. og Júlíusar Þórs Júlíussonar.
Magnús Vignir Eðvaldsson vék af fundi kl. 14:10.

3.Beiðni um framlengingu á launalausu leyfi

Málsnúmer 2403015Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Ásgeirs H. Aðalsteinssonar um framlenginu á launalausu leyfi. Byggðarráð hafnar beiðninni með vísan í 2. gr. reglna um veitingu launalausra leyfa þar sem segir: Leyfi skal að jafnaði ekki veitt til lengri tíma en 12 mánaða. Sama starfsmanni sé almennt ekki veitt endurtekið leyfi nema sérstakar fjölskylduástæður eða nám réttlæti það og hagsmunir sveitarfélagsins mæli ekki gegn því.
Magnús Vignir Eðvaldsson kom til fundar að nýju kl. 14:14.

4.Kynning á dagskrá í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins 2024

Málsnúmer 2403028Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

5.Beiðni lögreglustjórans á Norðurlandi vestra um svæðisbundið samstarf - Öruggara Norðurland vestra

Málsnúmer 2403027Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um þátttöku Húnaþings vestra í svæðisbundnu samstarfi gegn ofbeldi, öðrum afbrotum og til að stuðla að betri þjónustu fyrir jaðarsetta hópa. Byggðarráð samþykkir þátttöku í samstarfinu enda felist ekki í því fjárhagsleg skuldbinding. Sveitarstjóra er falið að undirrita samstarfsyfirlýsinguna fyrir hönd sveitarfélagsins.

6.Boð á aðalfund Veiðifélags Arnarvatnsheiðar og Tvídægru

Málsnúmer 2403024Vakta málsnúmer

Lagt fram boð á aðalfund Veiðifélags Arnarvatnsheiðar og Tvídægru sem fara á fram laugardaginn 23. mars 2024 í Laxahvammi. Magnús Magnússon, formaður byggðarráðs verður fulltrúi sveitarfélagins á fundinum og fer með atkvæðisrétt.

7.Boð á aðalfund Veiðifélags Miðfirðinga

Málsnúmer 2403035Vakta málsnúmer

Lagt fram boð á aðalfund Veiðifélags Miðfirðinga sem fara á fram föstudaginn 22. mars 2024 í Laxahvammi. Unnur Valborg Hilmarsdóttr, sveitarstjóri verður fulltrúi sveitarfélagins á fundinum og fer með atkvæðisrétt.

8.Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna áskorunar til sveitarfélaga í tengslum við kjarasamninga

Málsnúmer 2403037Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna áskorunar um breytingar á gjaldskrám í tengslum við kjarsamninga. Í því kemur fram að ekki er gert ráð fyrir að gjaldskrárlækkanir verði afturvirkar. Einnig kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir að breytingarnar nái til gjaldskráa sem lögum samkvæmt eiga að standa undir kostnaði við viðkomandi þjónustu eins og t.d. gjaldskrár fráveitu, vatnsveitu og meðhöndlun úrgangs. Þá er ekki átt við endurskoðun á álagningu skatta þ.e. fasteignaskatts og útsvars.

9.Fundargerð 104. fundar stjórnar SSNV, 5. mars 2024

Málsnúmer 2403026Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.
Bætt á dagskrá:

10.Viðauki við samning um rekstur Náttúrustofu Norðurlands vestra

Málsnúmer 2403040Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki við samning um rekstur Náttúrustofu Norðurlands vestra. Í viðaukanum er kveðið á um að gildistími samningsins framlengist um eitt ár og verði út árið 2024 í stað út árið 2023. Engar aðrar breytingar eru gerðar. Kemur viðaukinn til vegna úttektar á starfsemi náttúrustofa sem fram fer á árinu í tengslum við endurnýjun samninga um rekstur stofanna. Byggðarráð samþykkir viðaukann.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?