Félagsmálaráð

257. fundur 02. október 2024 kl. 10:00 - 11:15 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Gerður Rósa Sigurðardóttir formaður
  • Júlíus Guðni Antonsson aðalmaður
  • Kolfinna Rún Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Jóhannesdóttir aðalmaður
  • Þorbjörg Inga Ásbjarnardóttir varamaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson embættismaður
  • Henrike Wappler embættismaður
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Fundargerðir farsældarteymis

Málsnúmer 2310067Vakta málsnúmer

Fundargerðir farsældarteymis lagðar fram til kynningar.

2.Innleiðing á endurskoðuðu örorkulífeyriskerfi - gerð samnings um samstarf þjónustuaðila á sviði endurhæfingar

Málsnúmer 2409068Vakta málsnúmer

Kynnt voru drög að samningi um samstarf þjónustuaðila vegna endurhæfingar. Nokkur teymi verða á landinu og Húnaþing vestra mun tilheyra teymi á Vesturlandi undir stjórn Tryggingastofnunar.

3.Reglur um stuðningsfjölskyldur

Málsnúmer 2409063Vakta málsnúmer

Kynntar reglur Skagafjarðar um stuðningsfjölskyldur. Skagafjörður er leiðandi sveitarfélag í málefnum fatlaðra og gilda reglurnar því fyrir skjólstæðinga í Húnaþingi vestra.

4.Úthlutun íbúðar 101 í Nestúni

Málsnúmer 2408031Vakta málsnúmer

Hólmfríður Sigurðardóttir hafnaði íbúð 101 sem henni var úthlutað á síðasta fundi félagsmálaráðs. Íbúðinni var því úthlutað til Ásu Ólafsdóttur sem var næst á lista samkvæmt matsblaði.

5.Gott að eldast

Málsnúmer 2310068Vakta málsnúmer

Henrike Wappler fór yfir stöðu verkefnisins. Samningur er tilbúinn og búið er að segja starfsfólki heimaþjónustu upp og bjóða þeim sambærilegt starf hjá HVE frá og með 1. janúar 2025. Starfsaðstaða verður á sjúkrahúsinu á Hvammstanga og endurbætur á því húsnæði að hefjast. Stefnt er á að koma upplýsingaefni til íbúa fljótlega sem og halda íbúafund.

6.Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2024

Málsnúmer 2401004Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir helstu verkefni sviðsins frá síðasta fundi. Almenn mál til afgreiðslu/vinnslu eru 70 og einstaklingsmál 77.

7.Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2025

Málsnúmer 2409083Vakta málsnúmer

Starfsáætlun fjölskyldusviðs lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:15.

Var efnið á síðunni hjálplegt?