Félagsmálaráð

256. fundur 28. ágúst 2024 kl. 10:00 - 11:23 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Gerður Rósa Sigurðardóttir formaður
  • Júlíus Guðni Antonsson aðalmaður
  • Kolfinna Rún Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Jóhannesdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson embættismaður
  • Henrike Wappler
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
Sólveig Hulda Benjamínsdóttir boðaði forföll og varamaður hafði ekki tök á að mæta.

1.Athugun á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk á vefsíðum sveitarfélaga

Málsnúmer 2404072Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti breytingar á upplýsingum á heimasíðu Húnaþings vestra í kjölfar athugunar Gæða- og eftirlitsstofnunar.

2.Fundargerðir farsældarteymis

Málsnúmer 2310067Vakta málsnúmer

Fundargerðir farsældarteymis lagðar fram til kynningar.

3.frumkvæðisathugun á þjónustu í búsetuúrræðum fatlaðs fólks

Málsnúmer 2404097Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti frumkvæðisathugun á þjónustu í búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk. Málið er unnið á fagráðsfundum um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra.

4.Úthlutun íbúðar 108 í Nestúni

Málsnúmer 2408011Vakta málsnúmer

Einn íbúi hefur óskað eftir íbúð 108 og er henni úthlutað til Margrétar Guðmundsdóttur.
Félagsmálaráð samþykkir að taka á dagskrá liðinn Úthlutun á íbúð 101 og fær hann dagskrárnúmeri 5.

5.Úthlutun íbúðar 101 í Nestúni

Málsnúmer 2408031Vakta málsnúmer

Ekki liggja fyrir óskir íbúa um flutning innanhúss og því er íbúð 101 úthlutað til Hólmfríðar Sigurðardóttur.

6.Frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu

Málsnúmer 2403029Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnt frumkvæðisathugun Gæða- og eftirlitsstofnunar á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu. Nýjar reglur Húnaþings vestra um stoð- og stuðningsþjónustu eru frá 2023 og standast þau viðmið sem athugunin beinist að.

7.Bjartur lífstíll

Málsnúmer 2311025Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti upplýsingar á heimasíðu um hreyfiúrræði fyrir eldri borgara.

8.Gott að eldast

Málsnúmer 2310068Vakta málsnúmer

Henrike Wappler yfirfélagsráðgjafi fór yfir stöðu verkefnisins Gott að eldast. Drög að samningi milli HVE og Húnaþings vestra liggja fyrir og stefnt er að undirritun fljótlega.

Fundi slitið - kl. 11:23.

Var efnið á síðunni hjálplegt?