Byggðarráð

1233. fundur 09. desember 2024 kl. 14:00 - 15:55 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Mannauðsstefna

Málsnúmer 2410061Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá 1231. fundar byggðarráðs þann 11. nóvember sl. þar sem samþykkt var að kalla eftir umsögnum starfsmanna um stefnuna. Var það gert með fresti til 1. desember sl. Ein umsögn barst sem innihélt ekki efnislegar athugasemdir. Mannauðsstefnan er því lögð fram í óbreyttri mynd. Byggðarráð samþykkir framlagða stefnu og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

2.Fjármagn vegna ráðningar tengiráðgjafa í Húnaþingi vestra 2025

Málsnúmer 2411038Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur milli Húnaþings vestra og félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins um styrk vegna ráðningar tengiráðgjafa. Hljóðar styrkurinn upp á kr. 3,5 milljónir. Styrkurinn er veittur á grundvelli aðgerða stjórnvalda í að mæta félags- og heilsufarslegum afleiðingum Covid-19 heimsfaraldursins. Liður í þeim aðgerðum er að koma í veg fyrir og draga úr einmanaleika og félagslegri einangrun viðkvæmra hópa. Jafnframt byggir verkefnið á aðgerð B.1 um vitundarvakningu um heilbrigða öldrun og A.2 um heima-endurhæfingarteymi, í Gott að eldast, aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023-2027.

Auglýst hefur verið eftir starfsmanni til að sinna hlutverki tengiráðgjafa í 20-30% starfshlutfalli til eins árs.

Byggðarráð fagnar styrkveitingunni.

3.Ráðning sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs

Málsnúmer 2408001Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað vegna ráðningarferlis sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs Húnaþings vestra. Í minnisblaðinu er farið yfir ráðningarferlið og mat á þeim umsóknum sem bárust.

Byggðarráð hefur kynnt sér gögn málsins og samþykkir að ráða Þorgils Magnússon í starf sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs Húnaþings vestra. Sveitarstjóra er falið að ganga frá og undirrita ráðningarsamning við Þorgils.

Björn Bjarnason lætur af störfum um áramót. Byggðarráð þakkar Birni vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óskar honum velfarnaðar í komandi verkefnum.

4.Styrkumsókn vegna tveggja leiksýninga árið 2025

Málsnúmer 2412003Vakta málsnúmer

Til ráðstöfunar til leikfélaga á árinu 2025 eru kr. 300 þúsund. Þar sem fleiri en eitt leikfélag er starfandi í sveitarfélaginu verður það framlag auglýst til umsóknar í upphafi árs 2025. Því er ekki hægt að verða við styrkbeiðninni að svo komnu.

5.Styrkumsókn vegna jólatónleika

Málsnúmer 2412002Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir veitingu afsláttar vegna viðburða í samfélagsþágu.

6.Beiðni um umsögn um skipan raflínunefndar vegna Holtavörðuheiðarlínu 1

Málsnúmer 2412014Vakta málsnúmer

Byggðarráð vísar til fyrri umsagnar um málið sem veitt var á 1212. fundi ráðsins þann 29. apríl 2024. Þar sagði:

„Lögð fram beiðni innviðaráðuneytis um umsögn um beiðni Landsnets um skipan raflínunefndar vegna fyrirhugaðra framkvæmda við lagningu Holtavörðuheiðarlínu 1 og Holtavörðuheiðarlínu 3. Er beiðni Landsnets með vísan í 1. mgr. 9.gr.a. í skipulagslögum nr. 123/2010 en heimild til skipunar slíkra nefnda var fest í lög með lagabreytingu nr. 35/2023. Byggðarráð Húnaþings vestra lagðist gegn þeim breytingum. Taldi ráðið þá, og gerir enn, að þær vegi að skipulagsvaldi sveitarfélaga.

Byggðarráð Húnaþings vestra telur að á þessu stigi sé ekki þörf á skipan slíkrar nefndar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um legu línanna og þar af leiðandi ekki farið fram samtal um framkvæmdina og enn síður kominn fram ágreiningur um hana. Auk þess liggur ekki fyrir reglugerð um störf raflínunefnda á grundvelli lagabreytinga nr. 35/2023 og skipan nefndarinnar því ekki tímabær.

Húnaþing vestra hefur á öllum stigum sýnt mikinn vilja til samstarfs enda um að ræða afar mikilvæga framkvæmd fyrir svæðið og landsmenn alla. Sveitarfélagið mun líkt og á fyrri stigum halda þeirri samvinnu áfram.
Í rökstuðningi með beiðni Landsnets eru helstu rök fyrir skipan raflínunefndar að af því skapist mikið hagræði. Vissulega er um flókið skipulagsmál að ræða en byggðarráð vill benda á að skipulagsmál eiga ekki, og mega ekki, í eðli sínu vera einföld. Tilgangur þeirra er að tryggja að vel sé að verki staðið við hvers kyns framkvæmdir og að sem flest sjónarmið séu tekin með í reikninginn.

Í rökstuðningi Landsnets kemur einnig fram að hlutaðeigandi sveitarfélögum hafi verið tilkynnt um beiðnina og að engin sérstök mótmæli hafi borist. Byggðarráð vill að fram komi að í því bréfi var á engan hátt gefið til kynna að umsagna væri óskað heldur var ítrekað tekið fram að bréfið væri sent til upplýsingar.“

Byggðarráð ítrekar fyrri afstöðu sína um að ekki skuli skipuð raflínunefnd nema sannarlega séu deilur um lagningu línunnar enda felist í þeirri ráðstöfun alvarlegt inngrip inn í skipulagsferla og með henni vegið að skipulagsrétti sveitarfélaga. Í rökstuðningi Landsnets er vísað í fyrri framkvæmdir sem vissulega hafa tafist vegna deilna sem er miður. Byggðarráð fær ekki séð af framkomnum gögnum að um deilur um lagningu línunnar sé að ræða.

7.Milliuppgjör sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja. Þriðji ársfjórðungur 2024

Málsnúmer 2412016Vakta málsnúmer

Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti milliuppgjör eftir fyrstu níu mánuði ársins 2024, en framkvæmdaráð tók það fyrir á fundi sínum þann 9. desember sl. Rekstur er almennt samkvæmt áætlun.

8.Lok lóðarleigusamnings vegna Norðurbrautar 30

Málsnúmer 2212015Vakta málsnúmer

Lagt fram tilboð og rökstuðningur eigenda húseignarinnar að Norðurbraut 30 vegna loka lóðarleigusamnings. Ferli málsins var rakið í bókunum á 1214. fundi byggðarráðs þann 22. maí 2024 og 1224. fundi ráðsins þann 16. september 2024.

Byggðarráð vísar tilboðinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.

9.Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra - Umsóknir

Málsnúmer 2411033Vakta málsnúmer

Sótt var um styrki í Uppbyggingarsjóð til tveggja verkefna:

Endurgerð listaverksins Þróunar eftir Marinó Björnsson við Félagsheimilið Hvammstanga. Sótt var um styrk upp á kr. 3,6 milljónir til verksins. Styrksumsókninni var hafnað.

Húsin í bænum, gerð upplýsingaskilta um íbúðarhús í eldri hluta Hvammstanga byggð á texta og myndum úr bókinni Hús og hýbýli á Hvammstanga, húsaskrá 1898-1972 eftir Þórð Skúlason sem kom út hjá Bókaútgáfunni Skriðu árið 2021. Samþykkti úthlutunarnefnd að veita kr. 400 þúsund til verkefnisins.

Byggðarráð fagnar styrkveitingunni og felur sveitarstjóra framkvæmd verkefnisins.

10.Fundargerð 467. fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands

11.Fundargerð 955. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

12.Fundargerð 956. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

13.Fundargerð 957. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

14.Fundargerð 958. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

15.Fundargerð Fjallskilastjórnar Miðfirðinga 25. nóvember 2024

16.Fundargerð fjallskilastjórnar Hrútfirðinga 3. desember 2024

17.Fundargerð fjallskilastjórnar Víðdælinga 3. desember 2024

Fundi slitið - kl. 15:55.

Var efnið á síðunni hjálplegt?