Byggðarráð

1237. fundur 10. febrúar 2025 kl. 14:00 - 15:19 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Lok lóðarleigusamnings vegna Norðurbrautar 30

Málsnúmer 2212015Vakta málsnúmer





Lagt fram samkomulag milli Húnaþings vestra og eigenda húseignar á lóðinni Norðurbraut 30 (L144393) vegna kaupa eignarinnar til niðurrifs í samræmi við deiliskipulag svæðisins. Deiliskipulag frá árinu 2012 gerir ráð fyrir íbúðabyggð á svæðinu og lóðaleigusamningur því ekki endurnýjaður. Umsamin greiðsla er kr. 29.500.000. Byggðarráð samþykkir framlagt samkomulag og felur sveitarstjóra undirritun allra skjala sem samkomulagið varða fyrir hönd sveitarfélagsins.

2.Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2025

Málsnúmer 2502016Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga að Viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2025:

„Eignasjóður
Lóðir og lendur kr. 29.500.000
Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár. Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins.

Viðaukinn er gerður vegna samkomulags milli eigenda eignarinnar Norðurbrautar 30 og sveitarfélagsins í samræmi við deiliskipulag svæðisins.“


Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

3.Sameiginleg yfirlýsing aðstoðarskólastjóra í leikskólum sveitarfélaga á Norðurlandi

Málsnúmer 2502019Vakta málsnúmer

Lögð fram sameiginleg yfirlýsing aðstoðarleikskólastjóra nokkurra leikskóla á Norðurlandi vegna kjaramála.
Byggðarráð þakkar erindið. Samningsumboð sveitarfélaganna er hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og verður erindinu komið á framfæri við samninganefnd Sambandsins.

4.Reglur um frístundastyrki 2025

Málsnúmer 2502020Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að uppfærðum reglum um frístundastyrki til ungmenna í Húnaþingi vestra.
Breytingin felst í aldursbili þeirra sem rétt eiga á frístundastyrk en samþykkt var við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2025 að kortin giltu fyrir börn frá fæðingu til 18 ára aldurs í stað frá 6 ára áður. Framvegis verður sótt um frístundastyrkinn í gegnum íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins. Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Húnaþings vestra úthlutun 2025

Málsnúmer 2412051Vakta málsnúmer

Lagðar fram umsóknir í Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra.
Úthlutun úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra árið 2025 var auglýst með umsóknarfresti til 31. janúar. 6 umsóknir bárust innan tilskilins frests. Alls var sótt um kr. 8.470.000. Til úthlunar eru kr. 2.500.000. Að loknu mati á umsóknum samþykkir byggðarráð að veita eftirtöldum verkefnum styrk:

Sigrún Davíðsdóttir, vegna verkefnisins Saunasetrið kr. 450.000.
Greta Ann Clough, vegna verkefnisins Hret víngerð kr. 500.000.
Vettvangur íþrótta, vegna verkefnisins Betri nýting bættur hagur, kr. 150.000.
Selasetur Íslands, vegna verkefnisins selaskoðun í sýndarveruleika - lokaáfangi, kr. 600.000.
Framhugsun, vegna verkefnisins Rabarbaron, kr. 800.000.

Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningum við styrkhafa.

6.Drög að áætlun eignamarka fasteigna

Málsnúmer 2502022Vakta málsnúmer

Lagðar fram tilkynningar frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um drög að eignamörkum fasteigna. Um er að ræða fasteignirnar Ytri-Velli, Kirkjuhvamm, Gafl, Stóra-Hvarf, Krók, Þverá í Núpsdal, Fosskot, Lækjarbæ, Bjargshól og Fosssel. Er veittur 6 vikna frestur til að gera athugasemdir við áætluð eignamörk. Byggðarráð gerir athugasemd við stuttan frest sem veittur er enda er mikil vinna fólgin í því að sannreyna gögn fyrir 10 jarðir. Sveitarstjóra er falið að óska eftir fresti og vinna málið áfram í samvinnu við skipulags- og byggingafulltrúa.

7.Starfshópur um opnunartíma leikskóla og grunnskóla - 1

Málsnúmer 2501009FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar starfshóps um opnunartíma leikskóla og grunnskóla.
  • Starfshópur um opnunartíma leikskóla og grunnskóla. - 1 Farið yfir erindisbréf hópsins og forsendur ræddar. Kjarasamningsumhverfi starfsmanna sveitarfélagsins er með þeim hætti frá 1. nóvember 2024 að full vinnuvika er 36 stundir sem veldur mönnunarvanda.
    Ákveðið að kanna hug atvinnurekenda, íbúa og foreldra til þeirrar tillögu að leikskóli og frístund loki t.d. kl. 14:00 á föstudögum og/eða stytta hvern dag um 30 mín. Einnig verði kallað eftir öðrum tillögum. Það verði gert á íbúafundi og með opnu samráði. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að gera drög að kynningu fyrir næsta fund. Lagt til að halda íbúafund í febrúar 2025 um málið.



8.Stýrihópur um barnvænt og heilsueflandi sveitarfélag - 5

Málsnúmer 2501005FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 5. fundar stýrihóps um barnvænt og heilsueflandi sveitarfélag.
  • Stýrihópur um barnvænt og heilsueflandi sveitarfélag - 5 Lögð fram drög að stefnu um vellíðan án áfengis, tóbaks og annarra vímuefna. Stýrihópurinn vísar drögunum til afgreiðslu byggðarráðs.

9.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

Málsnúmer 2501002Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 960. og 961. funda stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

10.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2025

Málsnúmer 2502006Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 468. og 469. funda stjórnar Hafnasambands Íslands.

Fundi slitið - kl. 15:19.

Var efnið á síðunni hjálplegt?