Byggðarráð

1235. fundur 06. janúar 2025 kl. 14:00 - 16:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Húsnæðisáætlun 2025

Málsnúmer 2411047Vakta málsnúmer

Lögð fram uppfærð Húsnæðisáætlun Húnaþings vestra fyrir árin 2025-2034.
Byggðarráð samþykkir framlagða Húsnæðisáætlun Húnaþings vestra og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

2.Starfsáætlun byggðarráðs 2025

Málsnúmer 2412052Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að starfsáætlun byggðarráðs fyrir árið 2025.
Byggðarráð samþykkir framlagða starfsáætlun.

3.Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Húnaþings vestra, úthlutunarreglur og úthlutun 2025

Málsnúmer 2412051Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um úthlutun Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra ásamt uppfærðum úthlutunarreglum sjóðsins.
Byggðarráð samþykkir að úthlutanir Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs verði framvegis auglýstar í janúar. Ráðið samþykkir einnig uppfærðar reglur sjóðsins og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.Starfshópur um byggingu björgunarmiðstöðvar

Málsnúmer 2412062Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um stofnun starfshóps um byggingu björgunarmiðstöðvar í Húnaþingi vestra ásamt drögum að erindisbréfi hópsins.
Uppi hafa verið hugmyndir um byggingu björgunarmiðstöðvar til að leysa úr húsnæðisvanda slökkviliðs en í henni gæti jafnframt verið aðstaða fyrir sjúkrabíla og lögreglu ásamt björgunarsveit. Byggðarráð samþykkir að skipaður verði starfshópur um verkefnið og samþykkir jafnframt erindisbréf hópsins. Gert er ráð fyrir að í hópnum sitji fulltrúi meirihluta í sveitarstjórn sem jafnframt verði formaður, fulltrúi minnihluta í sveitarstjórn, slökkviliðsstjóri, skipulags- og byggingafulltrúi og fulltrúi Björgunarsveitarinnar Húna. Með hópnum mun starfa sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs. Sveitarstjóra er falið að kalla eftir tilnefningum í hópinn.

5.Reglur um birtingu gagna með fundargerðum

Málsnúmer 2412063Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að reglum um birtingu gagna með fundargerðum sveitarstjórnar og fastanefnda sem birtar eru á heimasíðu sveitarfélagsins.
Innleiðing á fundargerðakerfi hefur staðið yfir um nokkurt skeið. Með kerfinu er vinnulag við ritun og birtingu fundargerða bætt til muna ásamt því að færi gefst á stóraukinni upplýsingamiðlun með birtingu fylgigagna með liðum fundargerða þar sem það á við og er mögulegt. Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

6.Innkaupareglur Húnaþings vestra

Málsnúmer 2412064Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um innkaupareglur Húnaþings vestra ásamt drögum að uppfærðum reglum.
Í uppfærðum reglum er gerð breyting á því bili sem viðhafa á verðfyrirspurn við kaup á vörum og þjónustu og við gerð verksamninga. Er um að ræða hækkun í samræmi við verðlag líkt og heimilt er skv. 2. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016. Einnig er lagt til að innkaupareglur verði framvegis uppfærðar á tveggja ára fresti í samræmi við framangreinda heimild, næst í nóvember 2026. Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur með áorðnum breytingum og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

7.Samþykkt um tímabundinn afslátt af gatnagerðargjöldum

Málsnúmer 2412067Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurnýjaðri samþykkt um tímabundinn afslátt af gatnagerðargjöldum.
Um er að ræða niðurfellingu gatnagerðagjalda af eftirtöldum lóðum út árið 2025 í samræmi við heimild úr 5.gr. laga nr. 153/2006 og 5. gr samþykkar Húnaþings vestra um gatnagerðagjöld nr. 1325/2023:

Á Hvammstanga lóðirnar Bakkatún 3, Bakkatún 5, Bakkatún 7, Grundartún 2, Grundartún 17 og Hlíðarvegur 21.

Á Laugarbakka lóðirnar Teigagrund 7 og Gilsbakki 1-3.

Byggðarráð samþykkir niðurfellingu gatnagerðagjalda af framangreindum lóðum og vísar samþykktinni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

8.Jafnréttisáætlun 2023-2026

Málsnúmer 2308018Vakta málsnúmer

Lögð fram uppfærð jafnréttisáætlun Húnaþings vestra fyrir árin 2023-2026 að aflokinni könnun meðal starfsmanna.
Áður á dagskrá 1234. fundar. Niðurstöður könnunar meðal starfsmanna voru almennt jákvæðar og gáfu ekki tilefni til efnislegra breytinga. Byggðarráð þakkar starfsmönnum sveitarfélagsins fyrir að láta sig málið varða með þátttöku í könnuninni. Byggðarráð samþykkir framlagða uppfærða jafnréttisáætlun Húnaþings vestra ásamt stöðumati og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

9.Lóðaleigusamningar

Málsnúmer 2501003Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurskoðuðum lóðaleigusamningi um lóðir í Húnaþingi vestra.
Endurskoðunin var gerð af lögmanni sveitarfélagsins. Breytingarnar felast að mestu í uppfærðu orðalagi. Ekki er um efnislegar breytingar að ræða. Byggðarráð samþykkir framlagðan samning og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

10.Drög að flokkun tíu vindorkuverkefna

Málsnúmer 2412046Vakta málsnúmer

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óskar eftir umsögn um mál nr. 229/2024 í samráðsgátt.
Um er að ræða kynningu verkefnisstjórnar rammaáætlunar á drögum að flokkun 10 vindorkukosta. Umsagnarfrestur var upphaflega til 2. janúar 2025 en var framlengdur til 9. janúar 2025.

Byggðarráð þakkar framlengingu á skilafresti umsagna en sérstakt verður að teljast að jafn mikilvægt og umdeilt mál sé sett í samráð yfir jól og áramót. Byggðarráð Húnaþings vestra gerir eftirfarandi athugasemdir við framlögð drög:

Í drögunum kemur fram að verkefnisstjórnin telur brýnt að stjórnvöld ljúki stefnumótunarvinnu um virkjun vindorku í landinu. Byggðarráð tekur heilshugar undir það. Í því sambandi nefnir verkefnisstjórnin fjögur verkefni sem að mati byggðarráðs eru afar mikilvæg: (1) skoðun á stefnumótandi tillögum settum fram í skýrslunni Vindorka, valkostir og greining, (2) skipting kostnaðar og ábata m.a. milli ríkis og sveitarfélaga, (3) stefnumótun um staðarval vindorkuvera og fleiri stefnumótandi atriði og (4) breytingar á málsmeðferð vindorku í lögum um rammaáætlun. Byggðarráð leggur áherslu á að öll þessi verkefni er nauðsynlegt að vinna í náinni samvinnu við sveitarfélögin sem fara með skipulagsvald. Ógerningur er að taka afstöðu til einstakra virkjanakosta nema laga- og regluramminn sé skýr af hálfu hins opinbera og sveitarfélög geti aðlagað sínar skipulagsáætlanir að þeim ramma.

Af þeim 10 virkjunarkostum sem tilgreindir eru í skjalinu er einn innan Húnaþings vestra, Hrútavirkjun. Þegar til hans er litið eru upplýsingar í skýrslunni um margt ófullkomnar. Til dæmis er ekki er lagt mat á samfélagsleg áhrif, ástæða þess er auk þess ekki skýrð í skýrslunni. Afar erfitt er að leggja mat á fýsileika virkjunarkostsins án þess að samfélagsleg áhrif séu tekin með í reikninginn. Einnig vantar upplýsingar fyrir Hrútavirkjun í samantekt á þeim viðföngum sem faghópur 3 telur hafi mest jákvæð og
mest neikvæð áhrif við viðkomandi virkjunarkost. Einnig kemur fram að faghópar hafi ekki skoðað þætti eins og t.d. aðkomu að framkvæmdasvæðum né heldur hver beri þann kostnað, mengunaráhrif hafa heldur ekki verið skoðuð en hvoru tveggja eru mikilvægir þættir í mati á fýsileika virkjanakosta. Faghópar 1 og 2 hafa lagt mat á áhrif á fuglalíf og er sérstaklega fjallað um farleiðir hafarna og þá staðreynd að virkjanakosturinn Hrútavirkjun sé í farleið þeirra skv. mælingum. Byggðarráð telur brýnt að sá þáttur sé skoðaður betur áður en ákvörðun er tekin um framhald verkefnisins. Byggðarráð tekur einnig undir það sem fram kemur um að verkefnið hafi lítið verið kynnt í nærumhverfinu og á það við um fleiri virkjanakosti sem nefndir eru í skjalinu. Það verður að teljast sérstakt að einkafyrirtæki geti óskað eftir mati á virkjunarkosti innan sveitarfélags án nokkurs samtals við sveitarfélagið sem fer með skipulagsvaldið eða íbúa í nærumhverfinu.

Að framansögðu telur byggðarráð Húnaþings vestra skynsamlegt að virkjanakosturinn sé flokkaður í biðflokk eins og lagt er til í skýrslunni. Meginástæða þess er að laga- og reglurammi liggur ekki fyrir auk þess sem ekki liggi fyrir nægilegar upplýsingar til að leggja mat á þann virkjunarkost í sveitarfélaginu sem um ræðir. Byggðarráð gerir einnig athugasemd við það að einstaka aðilar geti "klukkað" ákveðin svæði án nokkurs samtals við sveitarfélögin eða nærumhverfi. Slíkt er ekki til þess fallið að auka traust og vilja heimamanna til að taka þátt í verkefnum sem þessum. Í vinnu við gerð regluverks um vindorku þarf að gera lagfæringar á því ferli svo sveitarfélög og íbúar þess verði þátttakendur frá upphafi í vindorkuverkefnum.

Ráðið áskilur sér rétt til athugasemda á síðari stigum málsins.

11.Endurskoðun leiðarkerfis landsbyggðarvagna

Málsnúmer 2412060Vakta málsnúmer

Kynning á stöðu verkefnisins Endurskoðun leiðarkerfis landsbyggðarvagna frá Vegagerðinni.
Lagt fram til kynningar.

12.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

Málsnúmer 2501002Vakta málsnúmer

Fundargerð 960. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 13. desember 2024 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?