Tilkynningar og fréttir

Deiliskipulag á lóð Grettisbóls við Laugarbakka

Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra þann 15. júli 2013 var samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Grettisból við Laugarbakka í Miðfirði, Húnaþingi vestra. Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með lýst eftir athugasemdum við skipulagstillöguna.
readMoreNews

Tilkynning vegna útboðs

Engar fyrirspurnir hafa borist vegna útboðs á skólaakstri um Vatnsnes. Sjá hér. Útboð – Skólaakstur Húnaþing vestra óskar eftir tilboðum í skólaakstur fyrir skólaárin 2013/2014 og 2014/2015.
readMoreNews

Húnasjóður

Húnasjóð stofnuðu hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra.
readMoreNews

Tilkynning frá hitaveitu Húnaþings vestra

Vinsamlegast athugið að hitavatnslaust verður í Nestúni frá kl. 10:00 og fram yfir hádegi í dag. Unnið er að viðgerð og biðjumst við afsökunar á þeim óþægindum sem kunna að verða vegna þessa. Hitaveita Húnaþings vestra
readMoreNews

Starf í boði í Húnaþingi vestra

Sjá nánar
readMoreNews

Friðarhlaupið í Húnaþingi vestra

Friðarhlaupið fer fram í Húnþingi vestra, þriðjudaginn 2. júlí. Áætlað er að hlaupið verði inn á Hvammstanga um kl. 15:40 og því er tilvalið að slást í för, haldið verður á Bangsatún þar sem plantað verður friðartré.
readMoreNews

Frá bóka- og skjalasafni

Opnunartími bókasafnsins frá 1 júlí til 6 ágúst. Verður bókasafnið opið frá Kl.13:00 til 17:00.   Bókasafnsvörður
readMoreNews

Athugið!

Mánudaginn 1. Júlí n.k. verður enginn vinnuskóli né önnur starfsemi á vegum vinnuskóla og sláttuhóps, vegna námsskeiðs flokkstjóra. Umhverfisstjóri.
readMoreNews

Útboð - skólaakstur

Húnaþing vestra óskar eftir tilboðum í skólaakstur fyrir skólaárin 2013/2014 og 2014/2015. Um er aðræða skólaakstur til og frá skólanum á Hvammstanga á leið 6 um Vatnsnes, daglegan akstur samkvæmt útboðsgögnum.
readMoreNews

Tilkynning frá Vatnsveitu Húnaþings vestra

Tilkynning frá Vatnsveitu Húnaþings vestra. Vinsamlegast athugið að kaldavatnslaust verður á Höfðabraut sunnan Mjólkurstöðvar,Búlandi og Eyrarlandi eitthvað fram eftir degi
readMoreNews