Við viljum vekja athygli á að á næstu vikum verða bekkir í búningsklefum íþróttamiðstöðvar lakkaðir og biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem það kann að valda
Samkvæmt sorphirðudagatali fer sorphirða fram á Hvammstanga og Laugarbakka í dag 29. febrúar.
Íbúar eru vinsamlegast beðnir um að sjá til þess að aðkomuleiðir að tunnum séu greiðfærar þeim sem sinna losun ílátanna, til að þjónustan geti farið fram.
Samkvæmt sorphirðudagatali fer sorphirða fram á Hvammstanga og Laugarbakka í dag 29. febrúar.
Íbúar eru vinsamlegast beðnir um að sjá til þess að aðkomuleiðir að tunnum séu greiðfærar þeim sem sinna losun ílátanna, til að þjónustan geti farið fram.
Nú hefst að nýju fyrirlestraröð Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna Með Sunnudagskaffinu. Dr. Vilhelm Vilhelmsson sagnfræðingur og stundakennari við Háskóla Íslands heldur fyrirlesturinn Bændur og vinnuhjú í Miðfirði á 19. öld. Fyrirlesturinn verður haldinn sunnudaginn 28. febrúar næstkomandi á Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna kl 14:00. Allir eru velkomnir og verður kaffisala á staðnum
Álagningu fasteignagjalda í Húnaþingi vestra árið 2016 er nú lokið. Álagningarseðlar hafa verið sendir til fasteignaeigenda sem eru 67 ár og eldri og til fyrirtækja. Vakin er athygli á að allir álagningarseðlar einstaklinga eru aðgengilegir á netsíðunni www.island.is undir „mínar síður“. Gjalddagar eru sex, þ.e. 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst. Eindagi er 30 dögum síðar.
Engar fyrirspurnir bárust um útboð á ræstingu í Grunnskóla Húnaþings vestra. Tilboð verða opnuð í fundarsal Ráðhúss Húnaþings vestra 15. febrúar kl. 10:00 að viðstöddum bjóðendum sem það kjósa.
Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur um land allt föstudaginn 5. febrúar. Af því tilefni ætlar skólakór leikskólans Ásgarðs að halda tónleika kl 15:00 – 15:30, þann dag.