Álagning fasteignagjalda 2017
Álagningu fasteignagjalda í Húnaþingi vestra árið 2017 er nú lokið. Álagningarseðlar hafa verið sendir til fasteignaeigenda sem eru 67 ár og eldri og til fyrirtækja. Vakin er athygli á að allir álagningarseðlar einstaklinga eru aðgengilegir á netsíðunni www.island.is undir „mínar síður“. Gjalddagar eru sex, þ.e. 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst. Eindagi er 30 dögum síðar
01.02.2017
Frétt