Umhverfisviðurkenningar 2015 - tilnefningar
Auglýst er eftir tilnefningum til viðurkenninga í umhverfismálum í Húnaþingi vestra 2015.
Veittar eru viðurkenningar vegna umhirðu húsa og lóða/landareigna, endurgerð húsnæðis og framlag til umhverfis og samfélags.
Nefnd vegna umhverfisviðurkenninga er skipuð af sveitarstjórn og heldur nefndin utan um valið. Nefndin skoðar garða/svæði með tilliti til umhirðu, umgengni, hönnunar, skipulags og áherslu á umhverfismál.
Umhverfisviðurkenningar verða veittar á fjölskyldudegi Elds í Húnaþingi, laugardaginn 25. júlí.
Hægt er að skila inn tilnefningum til Ínu Bjarkar, umhverfisstjóra á netfangið umhverfisstjori@hunathing.is