Notendur athugið!
Vegna viðgerða í dælustöð hitaveitunnar á Laugarbakka má búast við truflunum á vatnsrennsli á Hvammstanga og Laugarbakka frá klukkan 13:00 og fram eftir degi í dag fimmtudag 28.11.
Hitaveita Húnaþings vestra
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti fjárhagsáætlun ársins 2014 og þriggja ára áætlun 2015-2017 við síðari umræðu á fundi sínum þann 21. nóvember 2013.
Meðfylgjandi er greinargerð sem lögð var fram með fjárhagsáætlun ársins 2014 ásamt yfirliti um helstu niðurstöður.
Á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra þann 28. október sl. var samþykkt að ráða Esther Hermannsdóttur í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs frá og með 1. nóvember 2013.
í þessari viku mun Míla setja upp búnað fyrir Ljósveitu í símstöðinni á Hvammstanga. Til að flýta fyrir lagningu á landsbyggðinni, er í fyrsta áfanga settur upp búnaður fyrir Ljósveitu í símstöðvar og geta íbúar sem búa í innan við 1000 metra línulengd frá símstöðinni tengst fljótt og vel.
Næsta fimmtudag 7.nóvember verður árshátíðin okkar á Borðeyri hjá nemendurm leik-og grunnskóla og verða þau með leik, söng, glens og gríni og byrjar hún klukkan 15:00.