Laust er til umsóknar tímabundið starf skólaliða við Grunnskóla Húnaþings vestra. Um er að ræða 50% starf. Vinnudagar eu ½ þriðjudagur en 8 - 16 fimmtudaga og föstudaga. Við leitum að áhugasömum, jákvæðum og þolinmóðum starfsmanni sem getur unnið bæði sjálfstætt og með öðrum.
Eftir harða keppni við önnur lið í Vesturlandsriðli Skólahreysti, fóru leikar þannig að Grunnskóli Húnaþings vestra varð í 1. sæti. Keppnin fór fram í Íþróttahúsinu í Austurbergi og fór full rúta af nemendum með sem klapplið. Innilega til hamingju með þennan flotta árangur!!
Vegna bilunar í dælustöð hitaveitunnar verður lokað fyrir heita vatnið á Laugarbakka og Hvammstanga þriðjudaginn 6. mars 2012 frá klukkan 13:00 og fram eftir degi.
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra þann 27. febrúar sl. var eftirfarandi umsögn um samgönguáætlanir 2011-2014 og 2011-2022 samþykkt samhljóða:
„Sveitarstjórn Húnaþings vestra telur að í framlögðum tillögum til þingsályktana um samgönguáætlun 2011-2022 og um fjögurra ára samgönguáætlun 2011-2014 sé alltof litlum fjármunum varið til uppbyggingar og viðhalds héraðs- og tengivega."
Frá Menningarráði Norðurlands vestra. Menningarráð Norðurlands vestra hefur ákveðið að hafa eina úthlutun á árinu 2012, með umsóknarfresti til og með 15. mars.
Kæru sveitungar framundan er hátíð hjá okkur í leikskólanum Ásgarði, því að Dagur leikskólans verður haldin hátíðlegur um land allt mánudaginn 6. febrúar.