Tilkynningar og fréttir

Vinnuskóli Húnaþings vestra

Vinnuskólinn hefst 7. júní nk. 13-16 ára ungmenni hafa kost á að skrá sig í vinnuskólann. Óskað er eftir skráninum sem fyrst og eigi síðar en 15. maí nk.
readMoreNews

FEGRUNARDAGAR 2016

  -skorað er á fólk og fyrirtæki að taka höndum saman og taka virkan þátt í hreinsuninni-   Við hvetjum alla íbúa og sérstaklega forsvarsmenn fyrirtækja og rekstaraðila til að taka virkan þátt í átakinu og taka til í sínu nærumhverfi, raða upp heillegum hlutum og henda því sem ónýtt er.    Dagana 4., 6. og 9. maí 2016 munu starfsmenn Húnaþings vestra fjarlægja garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk á Hvammstanga og Laugarbakka. Í tilefni af vorhreinsuninni  verður  opnunartími Hirðu sem hér segir: Fimmtudaginn  5. maí frá kl. 13:00-16:00 Föstudaginn  6. maí frá kl. 14:00-17:00 Laugardaginn 7. maí frá kl. 11:00-15:00 Mánudaginn 9. maí frá kl. 14:00-17:00  
readMoreNews

Auglýsing - Deiliskipulag fyrir klapparnámu

Auglýsing um nýtt deiliskipulag fyrir klapparnámu í landi Bjarghúsa Húnaþingi vestra Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á 269. fundi sínum þann 14.04.2016 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir klapparnámu  í landi Bjarghúsa í Húnaþingi vestra, fyrrum Þverárhreppi samkvæmt  1. mgr.  41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
readMoreNews

Enn vantar flokkstjóra við vinnuskólann í sumar

Óskum eftir að ráða flokkstjóra við vinnuskólann, um er að ræða gefandi og skemmtilega útivinnu og stýringu á 13-16 ára ungmennum. Hægt er að semja um hlutastarf, eða vinna part úr sumri, allt kemur til greina. Æskilegt er að umsækjendur séu 18 ára eða eldri. Frekari upplýsingar veitir Ína Björk Ársælsdóttir umhverfisstjóri í s. 771-4959 eða á netfanginu; ina@hunathing.is
readMoreNews

Húnaþing vestra og Akureyri í átak í eldvörnum

Húnaþing vestra og Akureyri hafa gert samkomulag við Eldvarnabandalagið um að efla eldvarnir á heimilum og í stofnunum sveitarfélaganna. Samstarfið felur í sér að sveitarfélögin innleiða eigið eldvarnaeftirlit í stofnunum sínum í haust samkvæmt leiðbeiningum, gátlistum og öðrum gögnum sem Eldvarnabandalagið hefur gefið út. Þá verður fræðslu um eldvarnir beint að umsækjendum um húsaleigubætur en rannsóknir sýna að eldvarnir eru mun lakari í leiguhúsnæði en hjá þeim sem búa í eigin húsnæði.
readMoreNews

270. Sveitarstjórnarfundur

270. fundur sveitarstjórnar Húnaþings vestra verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl 2016 kl. 15:00 í Ráðhúsinu á Hvammstanga. Dagskrá
readMoreNews

Nýtt sorphirðudagatal

Nýtt sorphirðudagatal má sjá hér Sorphirðudagatalið mun berast íbúum Húnaþings vestra í pósti á næstu dögum.
readMoreNews

Frá Íþróttamiðstöð

Opið verður í Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra á sumardaginn fyrsta frá kl. 10:00-16:00
readMoreNews

Tilkynning

Vegna námsferðar starfsfólks Ráðhússins verða skrifstofur Ráðhússins  lokaðar eftir hádegi  í tvo daga,  miðvikudaginn 20. apríl og föstudaginn 22. apríl nk.
readMoreNews

Styrkur til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.

Forráðamönnum félaga-og félagasamtaka í Húnaþingi vestra er bent á að samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar Húnaþings vestra frá 14.06.2012 þurfa þau félög og félagasamtök sem óska eftir styrk til greiðslu fasteignaskatts að sækja um á þar til gerðum eyðublöðum. 
readMoreNews