Styrkumsóknir fyrir árið 2017
Sveitarstjórn Húnaþings vestra vinnur nú að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017. Félagasamtökum og einstaklingum í Húnaþingi vestra er hyggjast sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári er bent á að fylla út þar til gert eyðublað og senda ásamt fylgigögnum til skrifstofu sveitarfélagsins að Hvammstangabraut 5 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is eigi síðar en 15. september nk. Umsóknir sem kunna að berast að þeim fresti liðnum munu ekki njóta forgangs við afgreiðslu sveitarstjórnar.
16.08.2016
Frétt