Álagningu fasteignagjalda í Húnaþingi vestra árið 2015 er nú lokið. Álagningarseðlar hafa verið sendir til fasteignaeigenda sem eru 67 ár og eldri og til fyrirtækja.
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2015. Styrkir þessir eru veittir af velferðarráðherra og er markmið þeirra að efla atvinnulíf og auka aðgengi kvenna að fjármagni.
Nú hlakka allir til að fara á þorrablót, ekki síst unglingarnir. Það er líka gaman að koma saman, borða þorramat, hlæja yfir skemmtiatriðum og dansa fram á nótt. En við vitum að á þessum skemmtunum er áfengi haft um hönd.
Við viljum hér með hvetja ykkur, kæru
Þorrinn er genginn í garð með tilheyrandi þorrablótum og í dag 23.janúar er bóndadagur samkvæmt gamalli íslenskri hefð.
Það eru nokkur þorrablótin sem haldin verða hér í Húnaþingi vestra í ár.
Ályktun frá upplýsinga- og umræðufundi fyrir eldri borgara (60+) og aðstandendur
Ályktun frá upplýsinga- og umræðufundi fyrir eldri borgara (60+) og aðstandendur í Húnaþingi vestra haldinn í Félagsheimilinu á Hvammstanga þann 20. janúar 2015, kl. 17-19
Upplýsinga- og umræðufundur fyrir eldri borgara (60+) og aðstandendur í Húnaþingi vestra haldinn í Félagsheimilinu á Hvammstanga þann 20. janúar 2015, skorar á þingmenn kjördæmisins og heilbrigðisráðherra að tryggja fjármagn til að manna þau ónýttu legurými sem eru til staðar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga.