Viðbragðsáætlun Húnaþings vestra og helstu aðgerðir
Kæru íbúar
Nú höfum við fengið enn eitt verkefnið upp í hendurnar sem okkur er gert að leysa. Verkfærin eru af skornum skammti og okkur hefur ekki verið kennt hvernig á að nota þau. Þá reynir á þolinmæði, útsjónarsemi, sveigjanleika og jákvæðni sem aldrei fyrr. Mikilvægt er að allir nálgist verkefnið með opnum huga og fylgi í einu og öllu leiðbeiningum stjórnvalda.